Fara í efni

„VERÐUGU BANDAMENNIRNIR“

Ríkisstjórn og Alþingi hafa enn eina ferðina ákveðið að fjármagna kaup á vopnum sem ætluð eru til manndrápa í Úkraínu. Heimild til þessa er reyndar ekki ný af nálinni og byggt á því sem áður var ákveðið að sögn utanríkisráðherra. Það breytir því ekki að ákvörðunin nú er í samræmi við ákvörðun NATÓ að gera viðbótarátak til þess að auka hernaðargetu Úkraínumanna.

Jafnframt var á Alþingi ítrekaður stuðningur við tvær meginstoðir utanríkisstefnu Íslands, aðild að NATÓ og «varnarsamningi « við Bandaríkin.

Í umræðu sem fram fór á Alþingi voru þessir hornsteinar utanríkisstefnunnar dásamaðir nánast við húrrahróp í órofa samstöðu þingmanna.

Þótt 100% samþykki sé fyrir því á Alþingi að fylgja hervæðingarstefnu NATÓ og fylgispekt við BNA þá er ekki svo utan veggja Alþingis.

Ég veit i það minnsta um einn sem segir að ekki sé þetta í sínu nafni.

Sú var tíðin að innan þings sem utan vildu menn hafa þriðju stoðina á hávegum, að við værum fámennt land, þjóðin herlaus og vildi beita sér í þágu friðar. Innan Alþingis er þetta með öllu gleymt.

Bandaríkjamenn taka þátt í þessari nýjustu morðtóla-sendingu til Úkraínu en á þeirri forsendu að NATÓ ríkin kaupi vopnin í Bandaríkjunum.

Þetta kann að skýra orðalag utanríkisráðherra í frétt Ríkisútvarpsins eftir að ljóst varð að Íslendingar hefðu eina ferðina enn staðist verðleikapróf NATÓ:

„Við erum auðvitað ekki að gera eins mikið og aðrar þjóðir, en við erum að uppfylla okkar skuldbindingar og erum að sýna fram á að við erum verðugur bandamaður,“ sagði Þorgerður Katrín í viðtali við RÚV fyrr í dag.

„Við erum þannig að setja um átta milljónir bandaríkjadala, um milljarð króna í þetta PURL-verkefni, sem virkar, og það virkar ekki síst fyrir Úkraínumenn, en um leið tryggir það líka, að mínu mati, að við höldum stuðningi Bandaríkjanna í þessu verkefni öllu.“

En spurningin er svo í framhaldinu, hvort og þá hvenær sá tími renni upp að það þyki glæpsamlegt að styðja glæpamenn. Þá er ég að tala annars vegar um BNA og NATÓ og hins vegar má spyrja hvort það geti talist saklaust að taka peninga út úr aðþrengdu heilbrigðiskerfi til þess að fjármagna skipuleg manndráp á vígaslóð.

Löngu er orðið ljóst að NATÓ vill framlengja stríðið í Úkraínu þar til «sigur» hafi unnist. Klappliðið fyrir þessari stefnu er sjálft fjarri skotgröfunum, það er öðru fólki sem ætlað er að deyja, að uppistöðu til úkraínskum og rússneskum drengjum.
Er það á slíkum forsendum sem við viljum verða virt sem verðug í samfélagi þjóða?

Tilvitnuð frétt:
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-02-12-islendingar-setja-milljard-i-vopnakaup-fyrir-ukrainu-466795

----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)