Fara í efni

vALKYRJUR MEÐ LITLUM STAF?

Menn hafa haft gaman af því að kenna nýja ríkisstjórn við valkyrjur og hafa konurnar í forsvari fyrir ríkisstjórnarflokkana þrjá haldið þessu á loft enda segir málvitund nútímamannsins að valkyrja sé tengd krafti og dugnaði og jafnvel hetjuskap. Orðið valur tengist dauðdaga í stríði, samanber að „falla í valinn“ en að kyrja þýðir að „kjósa“. Í goðafræðinni voru valkyrjur þær sem réðu örlögum manna á vígvellinum. 

Og nú eru valkyrjurnar í ríkisstjórn einmitt að færa sig inn á vígvöllinn. Og þeirra val liggur fyrir: Stóraukið fé til manndrápa og fyrir bragðið stórminnkað fé til mannúðarmála.

En hvers vegna valkyrjur með litlum staf? Það er vegna þeirrar smæðar sem þær virðast hafa valið sér fyrir hlutskipti; þær hafa valið að hlýða skipunum frá hergagnaiðnaðinum um að NATÓ-ríkjum beri að stórauka kaup á manndrápstólum. Stoltenberg hinn norski sem einna lengst hefur gengið í því að bugta sig fyrir vopnaiðnaðinum sem framkvæmdastjóri NATÓ – Nátó er gulls ígildi fyrir Bandaríkin! – lagði hart að bandalagsríkjunum hverju um sig að stórauka við vígvæðinguna. https://www.ogmundur.is/is/greinar/norskur-krati-bugtar-sig-i-washington

Og nú er Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra vALKYRJUSTJÓRNARINNAR nýkomin úr faðmlagi sínu við Rutte, eftirmann Stoltenbergs í embætti, og segir hún honum að þær valkyrjurnar séu að hugsa um “eitt komma fimm prósentin.” Það er hækkun úr 0.14% í 1,5% af þjóðarframleiðslu til hermála. Það eru 70 milljarðar á ári.

Er enginn á Alþingi sem kemur til með að andæfa fyrir hönd skattgreiðenda og fyrir hönd þeirrar þjónustu sem skorin verður niður við trog?


Mynd tekin af vef mbl.is úr þessari frétt:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/05/28/ihuga_ad_verja_1_5_prosent_landsframleidslu_i_varna/

----
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna:
https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.