Fara í efni

UPPLÝSANDI OG ÁHRIFARÍKT VIÐTAL

Hér að neðan birti ég slóð á viðtal við Lawrence Wilkerson, yfirmann bandaríska heraflans (2002-2005). Þetta var í forsetatíð George W. Bush (2001-2009). Utanríkisráðherrann var Colin Powel en saman stóðu þeir tveir síðarnefndu ásamt fleirum að því að spinna ósannindavef um gereyðingarvopn í Írak í því skyni að réttlæta innrásina í það land árið 2003.

Lawrence Wilkerson segir innrásina hafa brotið sig og hið sama hafi átt um Colin Powel, ekki síst sú staðreynd að á þessum tíma hafi pyntingar verið heimilaðar.

Hann segir í viðtalinu sem hér má hlýða á, að það sem nú sé að gerast kunni hins vegar að verða mun afdrifaríkara. Ísrael sé að verða fyrir miklu meira tjóni í stríðsátökunum en vestrænir fjölmiðlar greini frá sem aftur geti leitt til þess að Ísraelsstjórn ákveði að grípa til kjarorkuvopna.

Viðtalið sem er á Democracy Now er ekki langt en í senn upplýsandi og áhrifaríkt.

https://www.youtube.com/watch?v=VVvEcpl9Ny4

----------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)