UMHVERFISSINNAR, HERNAÐARANDSTÆÐINGAR OG FÉLAG SKATTGREIÐENDA SVARI
UMHVERFISSINNAR, HERNAÐARANDSTÆÐINGAR OG FÉLAG SKATTGREIÐENDA SVARI
- Finnst umhverfissinnum að það eigi að ganga mótmælalaust að stórauka umferð hernaðartækja, herskipa og kafbáta og herþota á Norður-Atlantshafssvæðinu, sumt að staðaldri eins og eftirlitsflug NATÓ ríkja frá Íslandi og sumt tímabundið eins og heræfingar í Norður-Noregi og Finnlandi þar sem tugþúsundir hermanna taka þátt? Finnst samtökum umhverfissinna í lagi að mengun af völdum hernaðarumsvifa jafnt á friðartímum sem i ófriði séu undanskilin í allri tölfræði um mengun?
- Finnst andstæðingum vígvæðingar að það eigi að ganga mótmælalaust þegar íslenskir ráðamenn dásama hernaðaruppbyggingu á norðurslóðum, á upplognum staðhæfingum um aukin umsvif «óvinarins» sem þó ekki sé alveg víst hver sé. Þannig vitnar Ríkisútvarpið í norskan herforingja, Steiro að nafni, sem « segist alla daga velta fyrir sér hvernig sigra megi í styrjöld. Aðalóvinurinn verði líklega Rússland og Steiro sendir þau skilaboð til Rússlandsforseta að NATÓ sé reiðubúið til átaka.» RÚV segir að norski herinn segi Rússa fylgjast grannt með æfingunni, líkt og búist hafi verið við. Þeir hafi boðað eigin eldflaugatilraunir nærri Barentshafi meðan á æfingunni stendur. Allt ber hér að sama brunni stigmögnun vígvæðingar. Auðvitað munu Rússar svara í sömu mynt.
- Finnst Félagi skattgreiðenda það eigi að ganga mótmælalaust að ríkisstjórn Íslands láti skattfé okkar ganga í vígvæðingu og taki þar með undir með stríðsæsingafólki og talsmönnum hergagnaiðnaðarins. Hefur þetta komið til tals í félaginu?
Rúv segir frá:
https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-03-13-fjolmennt-herlid-vid-aefingar-i-noregi-og-finnlandi-469752
«Um það bil 32 þúsund hermenn frá fjórtán löndum taka þátt í, Cold Response, heræfingu Atlantshafsbandalagsins í norðanverðum Noregi og Finnlandi sem hófst 9. mars og stendur til þess 19.
Ætlunin er að láta reyna á bardagagetu hermannanna, um það bil hundrað herflugvéla og þrjátíu herskipa ríkja bandalagsins, við erfiðar aðstæður á norðurslóðum, nokkur hundruð kílómetra frá landamærunum að Rússlandi.
Þar geta skipst á fimbulkuldi og mildara vætuveður að sögn skipuleggjanda. Norski herinn segir Rússa fylgjast grannt með æfingunni, líkt og búist hafði verið við. Þeir hafa boðað eigin eldflaugatilraunir nærri Barentshafi meðan á æfingunni stendur.
Norskar orrustuþotur voru tvisvar sendar á loft fyrstu daga æfingarinnar, sem hófst 9. mars, til að hafa afskipti af rússneskum þotum undan norðurströnd Noregs. Ofurstinn Hans Martin Steiro rifjar upp að rússneskra flugvéla hafi á liðnum árum orðið vart þrjátíu til fjörutíu sinnum innan alþjóðlegrar lofthelgi við Noreg.
Heræfingin sé í anda þess að um raunverulegt stríðsástand væri að ræða og Steiro segist alla daga velta fyrir sér hvernig sigra megi í styrjöld. Aðalóvinurinn verði líklega Rússland og Steiro sendir þau skilaboð til Rússlandsforseta að NATÓ sé reiðubúið til átaka.»
NATÓ-vinafélagið Verðberg segir frá hvað sé á döfinni á okkar slóðum:
https://vardberg.is/frettir/miklar-nato-heraefingar-a-nordurslodum-fram-a-vor/
«Fram á vor verða fleiri norðuræfingar:
“Northern Viking: Æfing í apríl á og umhverfis Ísland. Þar verður lögð áhersla á að tryggja flutningaleiðir á sjó og í lofti til Norður-Evrópu. Flotastjórn Bandaríkjanna í Evrópu fer með forystu í æfingunni.
Dynamic Mongoose: Kafbátavarnaæfing á norðurslóðum í apríl-maí undir forystu flotastjórnar NATO.»
Northern Forest: Landhersæfing undir forystu Finna í Rovajärvi í Norður- Finnlandi. Samkvæmt varnarsamningi Bandaríkjamanna og Finna er Rovajärvi sameiginlegt æfingasvæði landanna.»
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)