UM MEINT MISTÖK ÓLAFS RAGNARS GRÍMSSONAR
Birtist á Vísi.is 11.11.26.
Ég ákvað að óska eftir því að fá birta í dag stutta hugvekju á vefritinu vísir.is vegna þöggunartilburða í garð Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrum forseta, þingmanns og þátttakanda í pólitískri umræðu á Íslandi svo lengi sem ég man eftir en hann er örfáum árum eldri en ég. Þannig var hann einn ötulasti málsvari friðarhreyfingarinnar á öldinni sem leið svo dæmi sé tekið og lagði þá margt gott til málanna að því er mér fannst en ýmsum öðrum síður en svo. Vildu margir þá sem nú að þagað yrði um annað en það sem NATÓ og BNA væri að skapi varðandi allt það sem laut að stríði og friði.
Ólafur Ragnar er enn við það heygarðshornið að hafa skoðun á þessum málum enda ekki vanþörf á þegar hervæðing í okkar heimshluta er að komast á hættulegt stig og við búum við fullkomlega gagnrýnislaus og leiðitöm stjórnvöld; leiðitöm í þeim anda sem verið hefur allt of lengi. Forsætisráðherra sagði nýlega á erlendri grund að sér þætti vel koma til greina að á Íslandi yrði að nýju erlendur her og það til frambúðar. Yfirlýsingar utanríkisráðherrans hafa og verið í þessum anda, herskáar mjög. Vandinn er sá að þessir ráðherrar gera annað og meira en viðra skoðanir af þessu tagi, þeim er fylgt eftir í verki.
Við þessar aðstæður hefur Ólafur Ragnar Grímsson kvatt sér hljóðs og vakið athygli á því að ígrunda þurfi allar hliðar máls og er það vel.
Hér má nálgast grein mína á Vísi.is: https://www.visir.is/g/20262961453d/org-og-meintu-mistokin
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)