Fara í efni

TIL VINSTRI VIÐ ESB: ÍSLAND TALI MÁLI FRIÐAR

Þorsteinn Bergsson, formaður Til vinstri við ESB í pontu, Margrét Pétursdóttir, fundarstjóri  og frummælendur, Steinunn Þóra Árnadóttir, Tinna Þorvalds Önnudóttir og Haraldur Ólafsson.

Síðastliðinn laugardag efndu samtökin Til Vinstri við ESB til opins fundar í Reykjavík um hernaðaráherslur innan Evrópusambandsins og stóraukin útgjöld á því sviði.
Yfirskrift fundarins var Hervæðingin og ESB. Framsögumenn voru Steinunn Þóra Árnadóttir, fyrrverandi þingmaður, Tinna Þorvalds Önnudóttir, listakona og Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar. Fundarstjóri var Margrét Pétursdóttir, leiðsöguman.

Framsögumenn voru á einu máli um að aukin hernaðarútgjöld myndu koma niður á félagslegum innviðum og þar með fátækari hluta samfélaganna; því fólki sem helst þyrfti að geta reitt sig á félagslegan stuðning. Þetta þyrfti fólk að hafa í huga þegar spurt væri um hve fýsilegt það væri fyrir Íslendinga að ganga í Evrópusambandið.

Margt umhugsunarvert var sagt á þessum fundi bæði af hálfu frummælenda og fundarstjóra en einnig þeirra sem sóttu fundinn og tóku þátt í umræðum að loknum framsögum.



Tinna Þorvalds Önnudóttir sagði að í reynd væru fæst lönd fátæk – ekki snauð í sjálfu sér – hins vegar væri mikil fátækt víða um lönd sem yrði því aðeins skiljanleg að hún væri skoðuð í ljósi arðráns nýlendustefnunnar og kapítalismans.
Þarna hafði fyrsti frummælandinn Steinunn Þóra Árnadóttir einnig borið niður því hún sagði að slík væri misskiptingin orðin í okkar heimshluta að öryggi væri ógnað. Margir einblíndu á ytri ógnir, en þyrftu að horfa til þess að samfélögum í Evrópu væri fyrst og fremst ógnað innan frá vegna misskiptingar og misréttis. Steinunn sagði enn fremur að fólk væri áhugasamt um að heyra um möguleg fávik frá regluverki ESB sem semja mætti um í stað þess að horfa til heildarinnar, hver kjarninn væri í því regluverki sem við kæmum til með að undirgangast við inngöngu!

Haraldur kom víða við í afar fróðlegu og vekjandi erindi. Sagði líkt og þær Steinunn Þóra og Tinna að mikilvægt væri að greina hismið frá kjarnanum í þessari umræðu. Þannig væri sífellt tíundað að við værum búin að festa í lög mikinn hluta af regluverki ESB í gegnum EES samninginn. Þetta mætti til sanns vegar færa, sagði Haraldur, en hitt skipti þó miklu meira máli að gera sér grein fyrir því að út af stæðu þau atriði sem mestu máli skiptu fyrir Íslendinga, auðlindirnar og vald á innviðum samfélagsins. Mestum tíma sínum varði Haraldur til þess að ræða hernaðarhyggjuna sem færðist í vöxt í Evrópu og mætti það ekki gerast að Íslendingar létu sópa sér inn í Sambandið á þeim öldufaldi. Hann sagði enn fremur að rangt væri hermt að Evrópa hefði sloppið við stríð frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Í það minnsta hefðu aðrar þjóðir ekki sloppið við stríð af hálfu evrópskra nýlenduríkja. Aukin áhersla væri nú á að samræma herafla innan ESB og minnti Haraldur á að slík samræming yrði mun meira krefjandi heldur en nokkru sinni undir þaki NATÓ með mun takmarkaðri valdheimildir en Evrópusambandið.
Eitt athyglisvert atriði vil ég enn nefna sem fram kom hjá Haraldi en það sneri að langvinnu og blóðugu stríði á Norður-Írlandi. Það hefði ekki unnist með því að bæta í vopnaburðinn heldur með því að draga úr honum og tala fyrir friði.

Fundurinn var vel sóttur og spunnust líflegar umræður um fundarefnið að loknum framsögum.

Enginn vafi leikur á því að fundalota samtakanna Til vinstri við ESB hefur þegar valdið vitundarvakningu vinstri sinnaðs fólks, og þá sérstaklega þeirra sem vilja að Íslend standi utan hernaðarbandalaga og einnig Evrópusambandsins. Fólki hrís hugur við herskáum yfirlýsingum forsvarsmanna Sambandsins og vill fyrir vikið ekki að Ísland stígi þar inn fyrir dyr.

Ísland eigi að tala máli friðar og láta að sér kveða á alþjóðavettvangi sem friðflytjendur.

Úr stefnuyfirlýsingu Til vinstri við ESB:

Heimasíða Til vinstri við ESB: https://www.tilvinstri.is/ 

Frétt mbl.is af fundinum síðstliðinn laugardag: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/02/vinstrimenn_setja_spurningamerki_vid_esb/

 

-----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)