ÞRENGT AÐ KÚRDUM - SARAH GLYNN IN SOUND AND WORD
Söruh Glynn hef ég áður kynnt til sögunnar en hún starfar í Strassborg í Frakklandi og er í nánum tengslum við fulltrúa Kúrda sem þar halda til í því augnamiði að ná eyrum Evrópuráðsins – Council of Europe. Gleggri greinandi er vandfundinn!
Í nýjasta pistli hennar frá því um síðustu helgi fer hún yfir þrönga stöðu Kúrda í Írak, hvernig rangfærslur Bandaríkjamanna hafa komið þeim illa. Með ólíkindum sé sú staðreynd að Bandaríkjastjórn skuli gangast við því að hafa sent Kúrdum vopn sem þeim hafi verið ætlað koma inn í Íran í janúar til stuðla þar að blóðugum mótmælum. Nema hvað Kúrdarnir hafi haldið vopnunum hjá sér, segi Trump. Allt þetta segja Kúrdarnir hins vegar vera ósannandi. Sarah segir Kúrda í Írak hafa reynt að halda sig alveg utan átakanna en hafi engu að síður mátt þola árásir frá Íran. Þar í landi hafa Kúrdar sætt grimmilegum ofsóknum og víkur Sarah Glynn að því í frásögn sinni.
Hún fer einnig yfir stöðu mála í Sýrlandi, hvernig þar sé deilt og drottnað á kostnað Kúrda. Nýja stjórnin í Damaskus þjóni vestrænum kapítalistum dyggilega, þannig hafi verið tekin ákvörðun um að opna þeim leið inn í hagkerfið, nú síðast með ákvörðun um að einkavæða heilbrigðiskerfið.
Af pistli Söruh Glynn má ráða að alið hafi verið á innbyrðis sundrungu á landsvæðum Kúrda, meðal annars með því að skipa í áhrifastöður þar einstaklinga sem hallir eru undir stjórnvöld í Damaskus og Ankara.
Hér má nálgast ritaðan pistil Söruh Glynn sem hún einnig les inn á band þannig um það er að velja að lesa eða hlusta nema hvort tveggja sé valið -
Sarah Glynn en word and sound:
-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)