ÞÉR ER BOÐIÐ TIL FUNDAR NÆSTA LAUGARDAG
Næstkomandi laugardag efni ég til opins fundar í fundaröðinni Til róttækrar skoðunar um hervæðingu Evrópusambandsins og misbeitingu valds.
Í gær birtust hér á síðunni varnaðarorð Alfred de Zayas til þeirra Íslendinga sem telja æskilegt að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hann segir ESB vera allt annað en það var þegar Íslendingar gerðu EES samninginn við sambandið í byrjun tíunda áratugarins. Gangi Ísland í ESB muni landsmenn iðrast þess fyrr en síðar.
Eitt er víst að innnan ESB hefur handhöfum fjármagnsins vaxið ásmegin í seinni tíð, miðstýring hefur aukist og nú hefur hergagnaiðnarinn bankað á dyr og verið vel tekið. Afleiðingar þessa munu vafalaust fljótlega segja til sín því sú allsherjar hervæðing sem nú stendur fyrir dyrum verður óhjákvæmilega á kostnað velferðar.

Ég bauð Alfred de Zayas, sem um árabil gegndi stöðu óháðs sérfræðings Sameinuðu þjóðanna um alþjóðleg samskipti, að koma orðum sínum á framfæri við opinn fund í Safnahúsinu við Hverfisgötu næstkomandi laugardag klukkan 12.
Þar munum við einnig heyra í ítalska hagfræðingnum Thomas Fazi, sem skrifað hefur hvað mest að undanförnu um ritskoðun á netinu, Hüsseyin Dogru sem sætt hefur ritskoðun sjálfur, að ógleymdum hinum víðfræga greinanda í málefnum samtímans, Jeffrey Sachs, prófessor við Columbia háskólann í Bandaríkjunum en hann kemur inn á fundinn í beinni útsendingu.
Ég hvet alla sem vilja kynna sér þessi mál að gefa sér rétt rúman klukkutíma til þess að hlusta á orð þessara manna því lengri verður fundurinn ekki.

--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)