ÞAKKIR TIL SIVJAR
Hinn 19. mars síðastliðinn birtist grein eftir Siv Friðleifsdóttur, fyrrum heilbrigðisráðherra, á vefmiðlinum visir.is um stöðu „ÁTVR málsins“. Greinin birtist í skoðanadálki vísis.is og vissulega kemur þar fram skoðun en einnig staðreyndir sem mega ekki liggja í þagnargildi. Þær staðreyndir þyrftu allir að þekkja því þær varða lýðheilsu, lýðræði og réttarríki sem hefur brugðist – fram til þessa.
Sem kunnugt er vinna eigin-hagsmunaaðilar hörðum höndum að þvi að grafa undan þeim dreifingarmáta á áfengi sem við höfum búið við með áfengisverslun ríkisins. Sjálfir vilja þeir geta makað krókinn á sölu áfengis og fyrst lögin hafa ekki leyft þeim það hafa þeir gripið til þess ráðs að brjóta þau.
Þetta hefur verið látið viðgangast og hafa stjórnvöld – ríkisstjórnir og Alþingi - horft í gegnum fingur sér við lögbrjótana. Sumir alþingismenn sem styðja lögbrotin með aðgerðaleysi sínu bera því við að lögin séu óljós, allt sé þetta á „gráu svæði“ og að þörf sé á skýrari lagaramma. Þau sem leggja það á sig að lesa lögin sjá það hins vegar í hendi sér hvílík firra þetta er. Þetta snýst einfaldlega um val. Hvorum skuli fylgt að málum, þeim sem vilja gera sér áfengissölu að féþúfu eða heilbrigðisstéttum og lýðsheilsu- og forvarnarsamtökum sem standa vörð um heilsufar þjóðarinnar.
Löggæsla og dómstólar hafa farið að hætti snigilsins í afgreiðslu kærumála frá foreldrasamtökum og öðrum sem vilja ekki sætta sig við niðurbrotið á ÁTVR og að lýðheilsusjónarmið séu þannig að engu höfð. Aðdáunarverð hefur verið sú seigla og það úthald sem Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum undir forystu Árna Guðmundssonar félagsmálaforkólfs og háskólakennara hafa sýnt við að halda kærumálum vakandi.
Kærumál eru þó loksins komin fyrir dómstóla en við svo búið tóku að heyrast skrækir utan frá Brussel, frá markaðslögreglu hins evrópska efnahagssvæðis – hagsmunagæslu gróðaaflanna – sem nú kallar eftir réttlætingu á því að Íslendingar skuli leyfa sér að hafa lýðheilsustefnu sem gengur gegn hagsmunum gróðaafla. Og undir þessa regnhlif sækir ríkisstjórn Íslands fast að færa okkur enn rækilegar. Það ætti að verða öllum umhugsunarefni.
Siv Friðleifsdóttir er félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu. Þessi samtök eiga að mínu mati mikið lof skilið fyrir einarða baráttu í þágu lýðheilsu. Þegar fram líða stundir verður þeirra minnst fyrir varnarbaráttu í þágu lýðheilsu og lýðræðis. Ríkistjórn(ir) og Alþingi hafa hins vegar sýnt ótrúlega linkind ef þá ekki beinlínis þjónkun við ófyrirleitin gróðaöfl. Enn á eftir að koma í ljós hvers menn muni minnast í framgöngu íslenskra dómstóla í þessu máli.
Grein Sivjar Friðleifsdóttur varpar ljósi á stöðu mála nú og ber að þakka fyrir hana. Að mínu áliti er það skylda hvers manns að setja sig inn í þetta mál. Það fjallar nefnilega sem áður segir um sjálft réttarríkið. Grein Sivjar er hér:
------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)