Fara í efni

ÞAÐ VAR ÞÁ: OKTÓBER 1986

Þessi mynd mun vera á sögusýningu í Höfða. Hún var tekin 10. október árið 1986, fyrir réttum 40 árum upp á dag.
Gorbatsjof leiðtogi Sovétríkjanna var mættur til Íslands til fundar við Reagan Bandaríkjaforseta í Höfða í Reykjavík að ræða afvopnun. Friðarhreyfingar höfðu feykt þeim þangað inn til þess að ræða um slökun spennu og friðsamari heim. 
Ég var þarna að taka á móti Sovétforingjanum fyrir hönd áhorfenda Sjónvarpsins, eini fréttamaðurinn sem fékk að leika lausum hala, heimspressan að örðu leyti innan girðingar spölkorn frá.
Leiðtogafundurinn skilaði ekki sýnilegum árangri fyrr en ári síðar en þarna var lagður grunnur að samningnum um bann við skammdrægum og meðaldrægum kjarnorkuflaugum, INF samningnum (Intermediate-Range Nuclear Forces Treaty) sem undirritaður var í Washington rétt rúmu ári síðar.
INF samningurinn var einhver mikilvægasti afvopnunarsamningur allra tíma. Honum var illu heilli hent á haugana að undirlagi Bandaríkjanna árið 2018.

Ég fletti upp á fæðingardegi Gorbatsjofs og sé að hann var fæddur árið 1931 og því aðeins 55 ára þegar þessi mynd var tekin, bráðungur maður en eldri í mínum huga þá. Myndinni tengjast margar minningar frá spennuþrungnum dögum sem í hönd fóru og hef ég stundum gert grein fyrir þeim. Þessi mynd eða áþekkar myndir fóru víða og birtist ein slík á forsíðu Prövdu daginn eftir að hún var tekin.

Ekki hefur heiminum miðað mikið fram á við síðan í október 1986 - Vert að spyrja eins og Jónas forðum, hvort við höfum gengið til góðs götuna fram eftir veg eða hvort okkur hafi jafnvel miðað aftur á bak. Ég hallast að því.

Það versta er að ögranir og stríðsæsingatal samtímans hefur svipt almenning þeirri friðarvon sem ríkjandi var á þessum tíma.

Þarna er verk að vinna. Við þurfum að skapa forsendur sem gera það trúverðugt að þetta sé vinnanlegt verk. Þá er ágætt að minnast þess sem einhvern tímann var sagt að þar sem sé vilji þar sé vegur.

--------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)