Fara í efni

TEKIÐ UNDIR MEÐ AÐALSTEINI: UMBOÐSLAUS UTANRÍKISRÁÐHERRA

Fyrir nokkrum dögum mætti ég í viðtal á Útvarpi Sögu að ræða um stríð og frið. Sagði ég að á Alþingi væri nú ENGINN sem talaði máli friðar en það látið viðgangast að ausa fé í stríðsrekstur og kynda undir stigmögnun vígbúnaðar og þar með stríðsæsingum.
Ég sagði jafnframt að annað veifið birtust sem betur fer skrif þar sem talað væri í gagnstæða átt.
Dæmi um þetta er «skoðunargrein“ sem Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar á Vísi.is síðastliðinn fimmtudag.

Þar er komið að kjarna máls:

"Kynslóðir Íslendinga hafa hingað til litið á sig sem litla, herlausa og vopnlausa þjóð, sem byggir stöðu sína í alþjóðasamfélaginu á friði, alþjóðalögum og friðsamlegum samskiptum. Þetta er ekki hugmynd sem varð til með yfirlýsingu eins stjórnmálamanns, heldur sjálfsmynd sem kynslóðir Íslendinga hafa alist upp við og sem á sér djúpar rætur í sögu þjóðarinnar."

 
Þetta þykir mér vera vel sagt. Ég tek undir með höfundi að utanríkisráherra er þarna umboðslaus. Það á reyndar við um ríkisstjórnina alla. Ekki nóg með það, Alþingi eins og það leggur sig sagði kjósendum aldrei hvert vegferðinni væri heitið í þessum efnum.


Hvernig má það vera að Ísland sem stærði sig af því að vera vopnlaus friðelskandi þjóð skuli nú gjamma hvað hæst um aukinn vígbúnað og aukna hörku í samskiptum þjóða: Auga fyrir auga tönn fyrir tönn.
Hvernig í ósköpunum gerðist þetta? Og svo ég beini spurningunni til þjóðarinnar, okkar allra, hvernig stendur á því að við höfum látið þetta gerast?
Er ekki mál að linni?
Eigum við ekki að fara að reisa okkur við?

Hér er slóð á umrædda grein eftir Aðalastein Júlíus Magnússon, hann í það minnsta sefur ekki og á þakkir skilið: https://www.visir.is/g/20262948726d/utanrikisradherra-hefur-ekki-slikan-rett

--------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)