TAKK SJÁLFSTÆÐISLOKKUR!
Það er þakkarvert þegar stjórnmálaflokkar koma hreint fram. Það gerði Sjálfstæðisflokkurinn í dag þegar hann minnti á hver hann raunverulega er.
Formaður og varaformaður flokksins skýrðu frá því á fundi með fréttamönnum að til stæði að taka upp þráðinn með sölu arðbærra ríkiseigna komist flokkurinn til valda á ný. Þar með voru kjósendur minntir á nauðsyn þess að halda þessari hagsmunahreyfingu auðvaldsins frá valdastólunum.
Eins og fyrri daginn verður allt selt sem skilar arði og græða má á, rafmagnsveitur, Isavia, Landsbankinn og fleira. Þetta segir sig sjálft, aðeins það er söluvara sem skilar hagnaði.
------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)