SVIPMYNDIR FRÁ FUNDUM UNDANGENGINNAR VIKU
Það var gaman að koma til fundar í Kakalaskála í Blönduhlíð í Skagafirði með Norðlendingum síðastliðinn sunnudag – fyrir réttri viku. Fundarefmið var ESB og landbúnaður. Það var Þórarinn Magnússon bóndi á Frostastöðum sem bauð fundarmenn velkomna en síðan tóku frummælendur við en það voru þau Erna Bjarndóttir, fyrrum hagfræðingur Bændasamtakanna, Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir og Þorsteinn Ólafsson, rithöfundur, formaður samtakanna Til vinstri við ESB. Að ræðum frummælenda loknum hófust almennar umræður sem ég stýrði.



Það voru samtökin Til vinstri við ESB sem stóðu að fundinum og var hann með líku sniði og samtökin höfðu áður staðið að í Tryggvaskála á Selfossi. Þessir fundir eru öllum opnir.
Hér að neðan má sjá nokkrar svipmyndir frá fundinum.







Mánudaginn 13. apríl var síðan málfundur haldinn í Iðnó í Reykjavík um sjálfstæði Íslands og hvað væri framundan. Fundurinn var fróðlegur og skemmtilegur, margar fróðlegar ræður fluttar. Fundarstjóri var ekki af verri endanum, sjálfur Guðni Ágústsson sem fór á kostum eins og stundum áður. Á myndinni að neðan má sjá hluta fundarmanna.

-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)
Á mánudag var síðan haldinn fundur í Iðnó um Evrópusambandið og fullveldismál. Sá fundur var bæði fróðlegur og skemmtilegur þótti mér. Prýðilegar ræður fluttar og fjörugur fundarstjóri!