Fara í efni

SKYNSEMISTAL FRÁ SÞ – COMMON SENSE TALK FROM UN EXPERT!

Mér þótti það vera uppörvandi að hlýða á óháðan sérfræðing Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, George Katrougalos, ræða heimsmálin við kínverskan fjölmiðil nýlega. Titill þessa talsmanns SÞ á ensku er Independent Expert of the United Nations Human Rights Council on the promotion of a democratic and equitable international order. Þetta er langur titill enda viðfangsefni embættisns ekki smátt í sniðum. George Katrougalos talaði mannamál í þessu sjónvarpsviðtali. Þar á ég við að hann hafi verið skorinorður og skýr, án málalenginga, allt heilbrigð skynsemi í mínum eyrum. Það vekur von að heyra áhrifamenn í heiminum tala með þeim hætti sem þarna var gert.

George Katrougalos hvatti til þess að jarðarbúar stæðu vörð um Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir þeirra en að þeim væri nú vegið af mörgum valdmönnum heimsins. Friður væri væri ótryggur án góðra samskipta á heimsvísu en góð yrðu þau aldrei án gagnkvæmrar virðingar. Misskipting, annars vegar hið ríka norður, hins vegar hið snauða suður væri vandi sem horfast yrði í augu við svo og kveikiþræðina að stríði. Þeir væru í fyrsta lagi hagsmunir, í öðru lagi ótti og í þriðja lagi fordómar. Við skildum margt betur þegar við greindum hagsmuni að baki styrjöldum, óttann sem fylgdi vonleysinu sem aftur væri fylgifiskur bágra lífskjara og fordómans fylgdu hinu óþekkta.

Um allt þetta væri gnægð fordæma úr sögunni.

Viðtalið við George Katrougalos er hér:

How can global governance become more equitable?

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)