Fara í efni

SKYLDULESNING FYRIR STJÓRNMÁLAMENN OG KJÓSENDUR

Ég þykist vita að bannað sé að taka blaðagrein traustataki og birta hana að höfundi forspurðum svo og þeim fjölmiðli sem birti greinina. Ég geri þetta engu að síður, hef hvorki rætt við höfund né blað en leyfi mér að birta hér fyrir neðan grein Einars Ólafs Haraldssonar sem birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn miðvikudag undir titlinum, Opinber fyrirtæki - verðmæti til framtíðar. Ég vona að mér fyrirgefist.

Þessi grein er skýr og markviss og segir það sem segja þarf í stuttu máli. Alþingismenn ættu tvímælalaust að lesa hana svo og bæjarfulltrúar. Þegar kemur að næstu kosningum væri hollt fyrir kjósendur að hafa hana í huga þegar þeir velja fullltrúa sína á þing eða í bæjarstjórnir, þá sem þjóna fjármagninu eða varðstöðumenn samfélagsins.

Þegar skoðað er hvaða eignir handlangarar fjármagnisns á Alþingi og í summum sveitarstjórnum vilja koma í hendur herra sinna er vert að hugleiða hvers vegna þetta þykir eftirsóknarvert og hvers vegna samfélag okkar má ekki verða af þessum eignum. 

Grein Einars Ólafs er fullkomlega öfgalaus, þvert á móti öfgalaust skynsemistal:

"Það er með ólíkindum að aðeins 18 árum eftir bankahrunið sé aftur rætt um að selja Landsbankann. Á sama tíma eru uppi áform um sölu Ljósleiðarans. Hvers vegna þessi ákafi í að selja verðmætar opinberar eignir í stað þess að byggja þær upp til framtíðar?

Landsbankinn var einkavæddur á árunum 1999-2003 fyrir um 21 milljarð króna. Fimm árum síðar var hann fallinn eftir stórfellda áhættutöku, þar sem stærstu eigendurnir voru jafnframt meðal stærstu skuldara hans. Afleiðingarnar urðu skelfilegar. Heimili misstu eignir, lífeyrissjóðir töpuðu stórfé, fyrirtæki fóru á hausinn og fólk missti atvinnu og lífsviðurværi. Enn má rekja hluta af vanrækslu innviða til niðurskurðar opinberra fjárfestinga eftir hrunið.

Nú á ríkið aftur Landsbankann, sem hefur greitt 245,5 milljarða króna í arð frá 2013, nær allt til ríkissjóðs. Samt er lögð til sala hans á grundvelli áætlaðs vaxtasparnaðar, án þess að fullnægjandi langtímasamanburður á framtíðararði, eignarverðmæti og skuldalækkun hafi verið lagður fram.

Ljósleiðarinn er annað dæmi. Hann er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, sem aftur er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Fyrirtækið hefur byggt upp umfangsmikið fjarskiptanet, tekjur þess vaxa og verðmætið gæti aukist verulega þegar skuldsetning minnkar.

Reynslan af sölu Mílu árið 2022 vekur jafnframt spurningar. Erlent eignarhald, mikil skuldsetning og þungur fjármagnskostnaður hafa haft áhrif á afkomu félagsins og skattgreiðslur hér á landi.

En Ljósleiðarinn snýst ekki aðeins um arðsemi. Hann er mikilvægur keppinautur Mílu og hluti af grunninnviðum landsins. Hvaða tryggingar eru fyrir því að yfirráð yfir þessum innviðum komist ekki, beint eða óbeint, í hendur erlendra aðila sem hafa hagsmuni andstæða íslensku þjóðaröryggi – hvort sem það verður eftir 10, 50 eða 100 ár?

Landsvirkjun sýnir hversu verðmætt opinbert eignarhald getur verið. Fyrirtækið hefur greitt ríkissjóði um 110 milljarða króna í arð vegna rekstraráranna 2021-2025 og skilaði um 36 milljarða króna hagnaði af grunnrekstri árið 2025. Þarna fara saman arðbær rekstur, verðmætir innviðir og áframhaldandi opinbert eignarhald.

Það er ekki mikill metnaður fólginn í því að selja verðmætar opinberar eignir til að leysa fjárhagsleg verkefni dagsins í dag án þess að meta hverju þær geta skilað komandi kynslóðum.

Opinbert eignarhald er ekki sjálfkrafa trygging fyrir góðum rekstri, en einkavæðing er heldur engin trygging fyrir meiri hagkvæmni. Áður en þessar eignir eru seldar verður að sýna fram á að salan skili meiri langtímaávinningi en áframhaldandi eignarhald og að almannahagsmunir, samkeppni og þjóðaröryggi séu tryggð. Annars er hætta á að skammtímahugsun ráði ferðinni á kostnað framtíðarinnar.

Höfundur er byggingaiðnfræðingur og fasteignastjóri á eftirlaunum."

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)