Fara í efni

SIGURÐUR AFFLUTTUR

Ekki er ég alltaf sammála Sigurði Hannessyni framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þótt hann hafi staðið sig vel um margt – farsæla aðferðafræði við losun gjaldeyrishafta átti hann verulegan þátt í móta og svo náttúrlega var hann í InDefence hópnum gegn Icesave samningunum og stóð sig þar með mikilli prýði – þá held ég að við séum í seinni tíð oftar ósammála en sammála.

En samt kom forsíða Morgunblaðsins í morgun mér á óvart. Erfitt var að skilja æpandi forsíðufrétt öðru vísi en svo að Sigurður Hannesson væri að fagna því sérstaklega að Evrópa vildi vígbúast sem aldrei fyrr.

Þetta voru hins vegar orð Ursúlu von der Leyen, hægri sinnuðum stjórnmálamanni frá Þýskalandi sem nú gegnir stöðu forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Úrsúla er mikill trumbuslagari fyrir hergagnaiðnaðinn sem kunnugt er.

Glæpur Sigurðar var sem sé ekki sá sem sýndist við fyrstu sýn. Það er hins vegar ekki hægt að horfa fram hjá því að hann var að taka undir með talsmönnum hernaðarmaskínunnar, þar með talið íslenskum stjórnvöldum, um stóraukið framlag til innviða sem gögnuðust í hernaði. Þar eru nefndir spítalar og vegir.

Þarna segir Sigurður íslenskan iðnað tilbúinn til framkvæmda.
Mín gagnrýni á Samtök Iðnaðarins í þessu samengi er sú að ótækt er að samtökin skuli taka undir ákall hervélar NATÓ - upprunnið í Bandaríkjunum í forsetatíð Bidens, nú ítrekað af hálfu og að hætti Trumps - um að Evrópa stórauki útgjöld til hermála.

Þegar er að koma í ljós íslensk stjórnvöld muni reyna að skýla sér á bak við «innviðaskýringuna», að þetta snúist bara um vegi og sjúkrahús.

En látum ekki afvegaleiðast. Ísland á að skipuleggja innviði sína, þar með talið vegi og sjúkrahús, á forsendum þarfa samfélags okkar en ekki út frá hernaðarhagsmunum.

Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sagði í mars á síðasta ári að koma þyrfti hagkerfunum Evrópu í stríðsham.

Þessum talsmanni Evrópusambandsins virðist ætla að verða að ósk sinni!

Það nöturlega er að þetta ætli vígvæðingarsinnum að takast og þá einnig með samþykki og hvatningu íslensku ríkisstjórnarinnar.

Og þarna er ég aftur byrjaður að vera ósammála framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Vil þó ekki taka þátt í að afflytja orð hans. Þess vegna þessi pistill.

-------------------------------------------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/