SENDUM RÍKISSTJÓRNINNI SKÝR SKILABOÐ
Fylgispekt íslenskra stjórnvalda við hernaðaröflin sem stýra NATÓ á sér lítil ef þá nokkur takmörk.
Í dag skrifa “vALKYRJURNAR” með litlum staf undir sameiginlegt bréf sem þær birta á vefsíðunni Vísi þar sem þær ítreka hótanir um að láta íslenska skattgreiðendur borga inn í hernaðarmaskínu NATÓ og samtök iðnaðarins taka undir með manndrápskór hernaðarbandalagsins og lýsa því yfir á forsíðu Morgunblaðsins að íslenskur iðnaður sé til í tuskið.
Frá atvinnuleysissvæðum Evrópu þar sem verksmiðjum hefur verið lokað, til dæmis bílaverksmiðjum í Belgíu, berast fréttir af því að yfirvöldin boði þau fagnaðartíðindi að nú sé að birta yfir því nú taki vopnin við.
Ursula von der Layen, þýskur hægri sinnaður stjórnmálamaður sem gegnir stöðu framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, ber bumburnar og gervallt stofnanaliðið tekur undir. Um allt þetta má lesa í íslenskum fjölmiðlum í dag.
https://www.visir.is/g/20252743176d/senda-thjodinni-skyr-skilabod-a-oroatimum
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/25/evropa_loksins_voknud_til_varna/
Ég ætla að leyfa mér að hvetja til andstöðu gegn þessu brjálæði. Íslenskir skattgreiðendur verða að segja vALKYRJUNUM með litlum staf að þær hafi engan rétt á því að ráðstafa fjármunum þjóðarinnar til vígvæðingar og öll þau sem eru andvíg hernaðartali þeirra þurfa að senda þeim skýr skilaboð á móti:
ÞIÐ TALIÐ EKKI Í OKKAR NAFNI
VIÐ VILJUM AÐ ÍSLAND BEITI SÉR FYRIR FRIÐARFERLUM OG HAFNI VÍGBÚNAÐARSTEFNUNNI.
ÍSLAND SEGI SIG ÚR NATÓ
-------------------------------------------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/