Fara í efni

SARAH GLYNN SEGIR FRÉTTIR FRÁ KÚRDISTAN

Sarah Glynn starfar í Strassborg í Frakklandi og er í nánum tengslum við fulltrúa Kúrda í Strassborg sem þar eru að staðaldri til þess að ná eyrum Evrópuráðsins – Council of Europe.

Sjálf er Sarah Glynn bresk, arkitekt að mennt, en hefur getið sér orð sem baráttukona fyrir jaðarsetta hópa mikil mannkostakona leyfi ég mér að fullyrða eftir kynni mín af henni. Og óhætt er að segja að gleggri greinandi er vandfundinn.

Pistlar Söruh Glynn um stöðu mála í Kúrdistan eru mjög áhugaverðir. Í síðasta pistli sínum fer hún yfir stöðu mála í Írak og Sýrlandi eftir að árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran hófust og Íranir tóku að svara fyrir sig.

Þetta hafi síðan magnað upp ófrið og erjur langt út fyrir landamæri Írans. Athyglisverð þykir mér sú áherlsa sem hún leggur á það hve eyðileggjandi nýlenduöflin hafi verið og hvernig þau hafi deilt og drottnað. Þar hafi Bandaríkjamenn gegnt lykilhlutverki í seinni tíð – og greinilega ekki til góðs. Þá gefur frásögn Söruh innsýn í erfiða stöðu Kúrda í norðanverðu Sýrlandi:
Sectarian futures – Last week in Kurdistan – News From Kurdistan

Á síðunni má sjá fyrri pistla Söruh Glynn.

------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)