Fara í efni

REYNSLA ÍRA AF SAMNINGUM VIÐ EVRÓPUSAMBANDIÐ

Helstu talsmenn þess að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu láta í veðri vaka að semja megi til frambúðar um það að Íslendingar yrðu undanþegnir því um alla framtíð að þurfa að hlíta sameiginlegri fiskveiðistefnu sambandsins. Reyndar tilgreina þeir fleiri svið þar sem semja megi um undaþágur til framtíðar.
En hvað kennir reynslan um slíka samninga? Á hádegisfundi næstkomandi fimmtudag munu tveir reynslumiklir írskir stjórnmálamenn, Patricia McKenna og Thomas Pringle, sem bæði hafa víðtæka þekkingu á þessu sviði, greina frá reynslu Íra.
Það er mikilvægt að öll þau sem hyggjast greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni kynni sér hvað þessir írsku gestir hafa að segja.

-------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)