RÉTTUR TIL KÚRDÍSKRAR TUNGU – THE RIGHT TO USE KURDISH
Í dag - 15. maí - er dagur kúrdískrar tungu en af því tilefni fjallar pistill Söruh Glynn, sem ég hef stundum birt pistla frá, um tungu Kúrda. Hún segir stöðu tungunnar vera eins konar loftvog á það hver staða Kúrda almennt sé. Ekki sé ástæða til að fagna.
Upphafsorð að pistli Söruh Glynn má nálgast á slóð hér að neðan bæði í rituðu formi en einnig hljóðupptöku sem varir í rúmar tólf mínúntur.
Sarah Glynn´s commentary starts with these words:
15 May is Kurdish Language Day, but the pressures and restrictions that Kurdish is facing ensure that there is little cause for celebration. This is not surprising as the fate of the Kurdish language is a barometer of the situation of the Kurdish people.
The commentary in full can be approached from a link below in a written form and also in a recording.
Ég hef stundum velt því fyrir mér hvers vegna frelsisbarátta Kúrda hefur lengi vel átt góðan hljómgrunn hjá Íslendingum. Ein ástæðan tel ég að sé sú að Íslendingar sem alla tíð lögðu mikla áherslu á rækt við sögulega arfleifð sína og tungu í sjálfstæðisbarátu sinni skildu vel þá menningarbaráttu sem Kúrdar hafa þurft að heyja við miðstýrð yfirvöld, einkum í Tyrklandi þar sem Kúrdar eru í meirihluta á stóru svæði. Fjandsamlegt ríkisvald vildi hafa hvort tveggja af þeim, menningarlega arfleifð þeirra og tungu.
Kúrdar eru ekki til, aðeins Fjalla-tyrkir mun Kemal Atatürk hafa haft á orði þegar hann stóð í broddi fylkingar um að reisa miðstýrt ríki í Tyrklandi á rústum Ottóman-veldisins fyrir rétt rúmum hundrað árum.
Hann og þeir sem síðar stýrðu Tyrklandi hafa kerfisbundið reynt að þurrka út öll sérkenni Kúrda innan Tyrklands og annars staðar þar sem þeir hafa komið því við. Þetta kemur fram í Sýrlandi nú þar sem Tyrkir ráða miklu og halda ásamt evrópskum og bandarískum nýlenduveldum verndarhendi yfir þeirri ógnarstjórn sem þau komu á laggirnar í Damaskus eftir að þau settu Assad frá völdum í árslok 2024.
Sarah Glynn starfar í þágu Kúrda í Strasborg, sem áður segir, er afbragðs greinandi að mínu mati og eru pistlar hennar þess vegna sérlega áhugaverðir:
The right to use Kurdish – News From Kurdistan
---------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)