PAWEL BARTOSZEK
Þegar Pawel Bartoszek datt út af þingi í kosningunum 2017 þótti mér það miður. Ekki vegna þess að þar með hefði ég misst samherja. Síður en svo. Við vorum og erum nánast ósammála um allt.
Mér þótti einfaldlega eftisjá að þingmanni sem væri eldklár, hefði ríkar skoðanir, byggði þær á rökum og berðist fyrir þeim af hugsjón og hita.
Svona menn vil ég hafa á þingi.
En að sjálfsögðu þarf þingmenn sömu gerðar til að taka á móti og helst stýra för. Slíkt mótvægi er hins vegar ekki til staðar á Alþingi nú um stundir í þeim mæli sem ég hefði viljað. Fyrir vikið ráða Pawel og félagar hans í Viðreisn of miklu. Ég læt nægja að vísa í ESB feigðarflanið – annað þarf ekki að nefna þótt af nógu sé að taka.
Þessi ummæli mín um Pawel Bartoszek eru til komin vegna þess að ég sá einhvers staðar á vefmiðlum ummæli um hann sem voru sérstaklega meiðandi. Mér þótti þau þó ekki meiðandi fyrir hann umfram aðra þótt þau beindust að honum. Þau voru meiðandi fyrir okkur öll, okkur sem samfélag. Sagt var að nafn hans bæri þess vott að hann væri aðkomumaður og ætti að hafa sig á brott.
Pawel er af pólsku bergi brotinn en er eins mikill Íslendingur og ég er. Pólverji líka eins og Vestur-Íslendingarnir í Kanada eru sennilega mestir Íslendingar allra Íslendinga jafnframt því að vera sannir og trúir þegnar Kanada. Frá Póllandi hafa margir flutt til Íslands í seinni tíð og orðið samfélaginu mjög til framdráttar. Pawel er verðugur fulltrúi þessa hóps. Hann á ekki að þurfa að búið við ófrægingartal fremur en nokkurt okkar.
Þess vegna skrifa ég þessar línur um þennan uppáhaldsmann minn sem sprottinn er af þessai rót.
En hann mætti gjarnan fara að hætta þessu pitsuáti á samfélagsmiðlum. Það getur varla verið gott fyrir heilsuna þótt ég viti að skyndibitamat sé víða hægt að fá innan Evrópusambandsins á lágu verði – enda þannig hugsað, að veita magafylli fyrir lítinn pening, óháð hollustu.
Má ég þá frekar byðja um vænan sauð og kál frá Lambhaga.
-------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)