NÖFN HINNA MYRTU Á GAZA SAUMUÐ Á DÚK
Á Lundúnaráðstefnunni sem ég sótti í vikulokin síðustu gegn hervæðingu og í þágu friðar, rakst ég á áhrifaríka sýningu á útsaumi á tugþúsundum nafna þeirra sem myrt hafa verið í þjóðarmorðinu á Gaza.
Það voru hjónin Mike og Jackie Monroe sem stóðu fyrir sýningunni og hafa þau unnið að þessu framtaki sem kona, Mary Evers að nafni, upphaflega hratt af stokkunum. Nú eru 400 «saumarar» að verki í 31 landi.
Aftan á dúkunum má sjá skilaboð þeirra sem sauma út nöfn hinna látnu, meðal annars um hve mjög þau hugsa til örlaga þeirra hvers um sig. Þau sem sóttu sýninguna urðu fyrir sömu hughrifum!




--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)