NEI! SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN HVORKI STRAX NÉ SÍÐAR!
Oft hef ég gagnrýnt borgarstjórnarmeirihlutann á undangengnum árum enda ærin ástæða til gagnrýni.
Slæmt syndaregistur
Þau gáfu olíufélögum milljarða á kostnað borgarbúa.
Þau hafa þjónað verktökum á kostnað borgarbúa – í raun afsalað skipulagvaldi til þeirra.
Þau hafa fram undir það síðasta unnið að því að fela einkaaðilum skipulag hverfa og almenningsstofnana – einkaframkvæmd hét þetta í Bretlandi og reyndist almenningi dýrkeypt.
Þau hafa forsómað Félagsbústaði og veitt öðrum styrktarfjármagn frá borg og ríki sem með réttu hefði átt heima hjá borginni sjálfri.
Úr öskunni í eldinn
Fleira mætti telja, en fari svo að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda í borginni verður farið úr öskunni í eldinn. Það fer hreinlega um mig hrollur þegar ég sé frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins aftan á strætó hóta því að það sem Sjálfstæðisflokkurinn vilji gera muni hann gera STRAX!
Og þá þarf að spyrja við hverju megi búast STRAX!
Göróttur drykkur
Ef horft er til reynslunnar og yfirlýstra áforma flokksins nú, verður til óhugnanlegur kokteill:
- allt verður einkavætt sem gæti gefið af sér arð, sorphirða yrði eflaust arðsöm í einokunarumhverfi.
-milliliðum yrði fjölgað með útvistun og einkavæðingu.
-mislæg gatnamót hafa jafnan verið D-listanum ofarlega í huga.
-fyrirtækjaleikskólar hafa þótt eftirsóknarverðir.
-hætt er við að Félagsíbúðir yrðu ekki aðeins fjársveltar heldur aflagðar.
Þjónusta til óþurftar
Ég ætla ekki að telja fleira upp en hvet kjósendur til þess að hafa það í huga að Sjálfstæðisflokkurinn er hagsmunabandalag fjármagnsaflanna og ESB- klofningurinn úr flokknum sem kallar sig Viðreisn er það líka. Þetta tvíeyki þjónar fjármagninu út í eitt og ætti ekki að hafa stjórnvöl almannaþjónustunnar og þar með ráðstöfun almannagæða á hendi.
-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)