MANNRÉTTINDALÖGMENN RJÚFA ÞÖGNINA UM ROJAVA
Aðalsaksóknarar í máli á hendur tyrkneskum yfirvöldum vegna stríðsglæpa og mannréttindabrota tyrkneska hersins og málaliða hans í Rojava í Norður-Sýlandi töluðu fyrir fullum sal í Safnahúsinu í Reykjavík í byrjun vikunnar. Heimsókn þeirra Jans Fermon og Ceren Uysal hefur fengið dágóða umfjöllun í Samstöðinni, Morgunblaðinu og Bylgjunni og er það þakkarvert. Ríkisútvarpið hefur haft öðrum hnöppum að hneppa eins og fyrri daginn.
Oddný Eir Ævarsdóttir tók ítarlegt viðtal við saksóknarana sem þegar hefur birst á Samstöðinni og er þess skammt að bíða að slóð á þann þátt birtist einnig hér á síðunni.
Myndirnar að ofan og neðan (þær bestu tók Rúnar Sveinbjörnsson) eru frá þessum fundi en tilefni þessa skrifs er að beina þeirri áskoðrun til fréttamanna og alþingismanna að halda uppi þrýstingi á íslensk stjórnvöld að þau noti hvert tækisfæri sem gefst til þess að þrýsta á NATÓ-ríkið Tyrkland að láta af ofbeldi í Rojava.
Árásir, aftökur og margvíslegt ofbeldi viðgengst á degi hverjum á þessu svæði án þess að hið minnsta kvak heyrist í fjölmiðlum eða á Alþingi.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar á NATÓ fundunum eru sáttir ef þeir ná augnkontakt við aðalmennina á fundunum hvað þá ef þeir fá að taka í hönd þeirra. Átakanlega bjánalegar fréttir af slíku höfum við þurft að afplána síðustu daga.
Sjálfum þykir mér NATÓ félagsskapurinn lítt eftirsóknarverður nema að hann væri notaður til þess að hafa í frammi mótmæli vegna þeirra glæpa sem NATÓ-ríkin hafa orðið uppvís að beint eða með þögn sinni.
Jean Paul-Sartre sem á sjöunda áratug síðustu aldar - ásamt Betrand Russel og fleirum - átti frumkvæðið að Permanent Peoples´ Tribunal - dómstól til varnar almenningi - sem þau Jan Fermon og Ceren Uysal fluttu mál sitt fyrir, hafði á orði svo eftirminnilegt varð að verstur væri glæpur þagnarinnar.
Markmiðið með fundinum í Safnahúsinu með þessum mögnuðu mannréttindalögmönnum var einmitt að rjúfa þögnina um stríðsglæpi og mannréttindabrot í Rojava.
------------------------------------------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/