Fara í efni

MÆLI MEÐ DAGFARA

Þá er Dagfari kominn út, málgagn hernaðarandstæðinga. Þótt bæklingurinn sé fremur smár í sniðum og aðeins tuttugu síður, rúmar hann mikinn fróðleik og er í senn bæði vekjandi og upplýsandi.

Hernaðarandstæðingar segjast vera að vinna að eigin öryggismálastefnu og sé þess að vænta að hún líti fljótlega dagsins ljós. Enda veitir ekki af samkvæmt formanni samtakanna Guttormi Þorsteinssyni. Hann segir í skorinorðum leiðarapistli sinum: „Stefnt er að hervæðingu íslensks samfélags, iðnaðar og menntakerfis. Þessu verðum við að standa gegn.“

Birt er ræða Steinunnar Þóru Árnadóttur, fyrrum alþingismanns og formanns Vestnorræna ráðsins frá 24. janúar síðastliðnum til stuðnings Grænlendingum. Hún sagði að Grænlandsútspil Trumps hefði orðið til þess að hermenn frá NATÓ ríkjunum væru komnir á norðurslóðir í stórum flokkum og talað væri um að verja hundruðum milljarða til hernaðaruppbyggingar „með tilheyrandi sóun og skaðlegum áhrifum á samfélag og umhverfi.“ Við verðum að krefjast þess sagði Steinunn Þóra „að aftur verði horfið til þeirrar stefnu að halda Norðurslóðum sem lágspennusvæði og koma í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup þar. Vígbúnaðarkapphlaup sem er fjármagnað og stýrt af evrópskum Natóríkjum er ekki síður háskalegt en brölt annarra risavelda.“

Stefán Pálasson skrifar um hugmyndir Frakka um að stækka kjarnorkuvopnabúr sitt og færa slík vopn til annarra Evrópuríkja, þar á meðal Norðurlandanna. Þessir draumar Macrons eru martraðir friðelskandi manna enda segir Stefán í niðurlagsorðum sínum að afleitt sé „að horfa upp á aðför evrópskra Nató-ríkja að síðasta og mikilvægasta kjarnorkuafvopnunaramningnum sem í gildi er.“

Grein Hauks Más Helgasonar finnst mér vera skyldulesning allra sem vilja vera með á nótunum! Hann fjallar um aðkomu íslenskra manna að vopnaiðnaðinum og hvernig íslensk stjórnvöld virðist hafa dansað þar með eins og sjá megi í lagabreytingum til þess að greiða götu viðskipta með framleiðslu sem tengist vígbúnaði. Haukur Már á þakkir skilið fyrir þessi og fyrri skrif um þetta efni og Dagfari að sama skapi fyrir birtinguna. Haukur Már hefur vísað okkur veginn, nú þarf hver maður að kynna sér þessi mál. Í kjölfarið þurfum við að sameinast um það að koma tjóðri á stórhættuleg og aðhaldslaus stjórnvöldin.

Lovana Veal segir frá vefráðstefnu mið-austurlensku friðarsamtakanna METO ( Middle East Treaty Organization). Hún segir að á undanförnum árum hafi fulltrúar frá 23 ríkjum Mið-austurlanda komið saman á hverju ári í því skyni að beita sér gegn kjarnorkuvígbúnaði. Það mat hefði komið fram á ráðstefnunni að Íranir hefðu ekki verið að sækjast eftir því að vígbúast með kjarnorkuvopnum en það kynni nú að breytast. „Stríðið hafi því aukið líkurnar á því að Íran eignist kjarnorkuvopn … !“

Gylfi Páll Hersir skrifar um „innrás og forsetarán í Vensúela“ og spyr hvað taki við. Hann víkur þar sérstaklega að Kúbu en efnahagsþvinganir í garð Kúbu hafi verið stórhertar eins og fram hafi komið í fréttum. Gylfi Páll segir eftirtektarvert að í stað þess að láta sitja við það eitt að undirbúa ofbeldisaðgerðir sínar gegn ríkjum með því að rægja og sverta þau í augum umheimsins og segja þau troða á þegnum sínum, þá bjóði BNA nú upp á þá skýringu að Kúba ógni þjóðaröryggi Bandaríkjanna!
Efnhagsþvinganir gegn Kúbu séu ekki nýjar af nálinni og þoli ekkert land slikar þvinganir út í hið óendanega, segir Gylfi Páll. Aðfdáunarvert sé hvernig Kúba hafi staðið af sér þetta langvarandi „ stanslausa stríð“ en nú þegar skrúfað er fyrir olíuna „ofan á allt annað“ hljótum við að spyrja „hvers lags heimur er það sem horfir upp á slíkt athugasemdalaust og hvaða speki er að horfa framhjá þessu þegar reynt er að átta sig á þróun mála á Kúbu.“
Ég er sammála Gylfi Páll Hersir!

Eyrún Ósk Jónsdóttir hittir naglan á höfuðið þegar hún skýrir í vel völdum orðum að verkefni mannkynsins sé augljóst og ekki flókið vilji menn á annað borð sjá hið augljósa. Eyrún Ósk talar fyrir friði en varpar jafnframt fram efasemdarspurningu því hún vill fá við henni svar: „En það er búið að reyna friðarviðræður“ eða er ekki svo spyr hún.
Og ekki stendur a svarinu: „Ekki með sömu fjármunum, sömu herkænsku, sömu einbeitingu og sama krafti og verið er að eyða í stríð og morð á börnum.“
Og svo bætir hún við: „Það hefur aldrei í sögunni verið reynt.“

Mæl þú manna heilust Eyrún Ósk.

Hér má lesa Dagfara frá frá orði til orðs: https://fridur.is/dagfari-kominn-ut/ 

------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)