Fara í efni

LÖGREGLUSAMSTARF ESB OG ÍSRAELS ÞRÁTT FYRIR ÞJÓÐARMORÐ

Eins ótrúlegt og má vera gefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins enn grænt ljós á samstarf við ísraelsk lögregluyfirvöld og það sem meir er, reynir að koma á formlegu samstarfi um gagnkvæmar upplýsingar um þá sem taldir eru ógna valdstjórninni, hvort sem er innan Evrópusambandsins eða í Ísrael, sem á þessum bæjum kallast jafnan hryðjuverkamenn. Samkomulagið sem hefur verið í smíðum og er enn í smíðum gengur meðal annars út á að skiptast á upplýsingum um fólk sem þannig er flokkað.

Hið óhugnanlega er að það skuli yfirleitt vera til umræðu að gera formlegt samkomulag um slíkt samstarf í ljósi staðfestrar vissu um aftökur án dóms og laga og pyntingar í ísraelskum fangelsum að ógleymdu þjóðarmorði!

Þá segir það sína sögu um stjórnarhætti innan ESB að enda þótt slíkt samstarf, hvað þá löggilding þess, stríðir gegn alþjóðalögum og þrátt fyrir mótmæli á þingi Evrópusambandsins og af hálfu aðskiljanlegra stofnana innan þess og utan heldur þetta samstarf áfram og enn er unnið að formbindingu þess.

En ekki horfa fram hjá því að þessu er mótmælt kann einhver að segja. Því er til að svara að það er veruleikinn sem máli skiptir, ekki glansmynd af honum.

Exclusive: EU Commission still seeking controversial police agreement with Israel, despite warnings - Statewatch

-------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)