LEYFIST AÐ SPYRJA UM AFSTÖÐU TIL LÝÐHEILSU?
Hér fyrir neðan er sýnishorn af skrifum um forvarnarmál sem birst hafa opinberlega með upplýsingum og ákalli til stjórnvalda um að sýna ábyrgð í forvarnarmálum. Ákallið kemur frá heilbrigðsisstéttum, foreldra- og forvarnarsamtökum svo og heilbrigðisstofnunum innanlands og erlendis.
Ástæða er til þess að minna stjórnvöld á eigin stefnu, það er samþykkta lýðheilsustefnu Íslands, varnaðarorð þeirra sem fást við áfengistengda sjúkdóma að ógleymdum þeim sem einfaldlega vilja að farið sé að landslögum. Dómur féll nýlega sem kunnugt er um ólögmæti "netverslunar" með áfengi. Af hálfu stjórnarmeirihlutans eru einu sýnilegu viðbrögðin að leggja fram þingmál í anda þess sem ólöglegu vínsalarnir fara fram á og ganga út á það að knésetja Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og koma verlsun með áfengi í hendur prívataðila. Þarna er um mikla fjárhagslega hagsmuni að ræða og er vægast sagt dapuelgt að fylgjast með ríkissjórn og Alþingi ganga erinda fjárplógsmanna á kostnað lýðheilsunnar.
Í ljósi alls þessa og með hliðsjón af þeim skrifum sem nálgast má hér að neðan er beðið um afstöu ríkisstjórnar og Alþingis til lýðheilsumála. Getur það verið að ríkisstjórn landsins og alþingismenn ætli að hundsa þetta þetta fólk, þessi samtök, þessar stofnanir?
- maí 2026 Aukið aðgengi að áfengi? - Vísir Opið bréf til þingmanna varðandi frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum nr. 75/1998, Lísbet Sigurðardóttur verkefnastjóri Saman-hópsins (segir “Ef vefverslun með áfengi verður heimiluð með lögum er um leið verið að draga úr þeim skilaboðum að áfengi beri að varast og umgangast með varfærni vegna alvarlegra heilsufars- og samfélagslegra afleiðinga sem það getur haft. Látum fjárhagslega hagsmuni söluaðila ekki vega þyngra en vernd barna og ungmenna og þær langtímaafleiðingar sem umræddar lagabreytingar gætu haft á samfélagið í heild.”)
- maí 2026 https://www.visir.is/g/20262878893d/thegar-hagnadur-einstaklinga-vegur-thyngra-en-heilsa-thjodar Starfsmenn embættis landlæknis, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Ösp Árnadóttir og Kjartan Hreinn Njálsson, með grein um frumvarp Viðreisnar (segir “ Verði frumvarpið samþykkt munaðgengi að áfengi aukast sem eykur á skaða og þjáningu meðal einstaklinga í samfélaginu, auka drykkju ungmenna veikja forvarnir, sem og stórauka kostnað í heilbrigðiskerfinu vegna beins og óbeins skaða af völdum notkunar á áfengi.”)
- apríl 2026 https://nordicwelfare.org/popnad/en/artiklar/values-money-and-alcohol-a-new-challenge-in-icelandic-sports/ Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna-félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu (segir “The increasing presence of alcohol in Icelandic sports challenges the core values of prevention, healthy lifestyles, and social responsibility that underpin the Icelandic Prevention Model.”)
- apríl 2026 Takk hjúkrunarfræðingar! - Vísir Siv Friðleifsdóttir, félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra (segir “Hjúkrunarfræðingar hafa ásamt öðrum heilbrigðisstéttum og forvarnar- og foreldrasamtökum hvatt stjórnvöld og almenning til að sofna ekki á verðinum í forvarnarstarfi heldur verja lýðheilsu af öllum mætti.)
- apríl Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? - Vísir Siv Friðleifsdóttir, félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra (segir Lýðheilsa fellur undir heilbrigðisráðherra, Ölmu Möller, sem hefur ávallt staðið þétt með lýðheilsu og að einkasala ríkis á áfengi sé besta fyrirkomulag slíkrar sölu. Hún segir skýrt í svari til Alþingis að það komi ekki til greina að leggja niður ÁTVR án undanfarandi lýðheilsumats”).
- mars 2026 157-2037.pdf Umsögn Læknafélags Íslands um frumvarp um lögleiðingu netsölu áfengis, þ.e. frumvarp Viðreisnar (segir “Að mati LÍ er raunin sú að gildandi lög og reglugerðir um sölu og markaðssetningu áfengis hafi verið sniðgengin til lengri tíma. Það eru ekki málefnaleg rök að lögfesta starfsemi að þessu tagi af þeirri ástæðu að hún hafi verið látin afskiptalaus. Tilvísun til sjónarmiða að baki atvinnufrelsi benda umfram annað til að það séu markaðsleg sjónarmið sem ráði för. LÍ leggur áherslu á að opinber stýring á markaðssetningu og aðgengi áfengis varði lýðheilsu landsmanna, sem séu almannahagsmunir tryggðir í 74. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Sjónarmið að baki atvinnufrelsi verði að víkja í þessu efni, enda er aðgengi að áfengi hér á landi ekki úr hófi skert.”)
- mars 2026 157-2039.pdf Umsögn frá Siv Friðleifsdóttur um frumvarp um lögleiðingu netsölu áfengis, þ.e. frumvarp Viðreisnar (segir “Sökum þessa er algert lágmark að fram fari lýðheilsumat á frumvarpinu áður en nokkrum dettur í hug að velta fyrir sér samþykkt þess. Með frumvarpinu er verið að auka aðgengi að áfengi og þar með ógna markmiðum gildandi áfengislaga. Aukið aðgengi i þýðir aukin neysla eins og allar lýðheilsurannsóknir sýna og WHO heldur á lofti. Þessi staðreynd breytist ekki þótt áfengisiðnaðurinn klifi á hinu gagnstæða og reyni að telja fólki trú um að aukið aðgengi auki ekki neyslu.”)
- febrúar 2026 552e4709-5c07-f111-9bd5-005056bcce7e Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til 2035 (segir “Lýðheilsa og almannahagsmunir verða að vega þyngra en fjárhagslegur ávinningur einkaaðila. Afstaða Fíh byggir á faglegum heilindum og hefur velferð samfélagsins að leiðarljósi, en ekki sérhagsmuni. Þá styðst félagið við heimildir byggða á vísindalegum grunni sem sýna að aukið aðgengi að t.d áfengi leiðir til aukinnar sjúkdómsbyrði, hærri samfélagskostnaðar og aukinnar þjáningar.”)
- febrúar 2026 bbc08a92-8007-f111-9bd5-005056bcce7e Umsögn Félagsráðgjafafélags Íslands um drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til 2035 (segir “Áherslan á að draga úr aðgengi að áfengi, framfylgja banni eða takmörkunum á áfengisauglýsingum og tryggja að sala og markaðssetning sé í samræmi við lýðheilsusjónarmið er mikilvægt. Ástæða er til þess að beina sjónum að Alþingi og tryggja viðeigandi fræðslu þingmönnum til handa til að fækka þingmálum sem eru andstæð stefnudrögunum.”)
- febrúar 2026 Takk læknar! - Vísir Grein Siv Friðleifsdóttir, félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra (segir “ Ef lögreglan vinnur málið að lokum þarf að taka fyrir netsöluna á áfengi eins og hún er framkvæmd á Íslandi. Henni væri lokað. Ef lögreglan hinsvegar tapar málinu að lokum þarf Alþingi að ákveða hvort skýra eigi lögin og viðhalda gildandi stefnu sem byggir á lýðheilsusjónarmiðum, eða kúvenda stefnunni og heimila sölu áfengis í matvöruverslunum.”)
- febrúar 2026 Heilsa og líðan barnanna okkar - Vísir Alma Möller, heilbrigðisráðherra (segir “Þá þarf áfram að vinna gegn auknu aðgengi að áfengi.”)
- janúar 2026 Áfengi eykur líkur á sjö tegundum krabbameina - Vísir Sigurdís Haraldsdóttir,krabbameinslæknir og yfirlæknir á Landspítala, prófessor við læknadeild HÍ (segir “Því er nauðsynlegt að þeir sem fara með völdin í þessu landi geri sér fulla grein fyrir afleiðingum þess að gefa sölu frjálsa og þeim kostnaði sem af því myndi hljótast. Það er mikilvægt að standa vörð um áhrifaríka áfengislöggjöf í landinu sem heftir aðgengi og bannar auglýsingar.”)
- nóvember 2025 Setjum velferð barna og ungmenna í forgang og sameinumst um bætta lýðheilsu - Vísir María Heimisdóttir, landlæknir og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis (segir “Í ljósi alls þessa hvetur embætti landlæknis stjórnvöld, sveitarfélög og íþróttahreyfinguna til að sameinast um að vernda lýðheilsu landsmanna, ekki síst barna og ungmenna, með því að takmarka aðgengi að áfengi og verja einkasölu ríkisins á áfengi. Núna, þegar áhlaup er gert að forvörnum með kröfu um aukið aðgengi að áfengi, er þörf á að setja velferð barna og ungmenna og lýðheilsu almennt í forgang.”)
- janúar 2025 Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka ofl. í samráðsgátt 21. janúar 2025. Samtals 16 heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök með sparnaðarráð til ríkisstjórar (erindi 3406 segir “Allar rannsóknir sýna að áfengisneysla hefur neikvæð áhrif á lýðheilsu og mikinn samfélagslegan kostnaði í för með sér. Þær sýna einnig að öll aukning í sölu áfengis, m.a. vegna aukins aðgengis að áfengi, veldur tilheyrandi aukningu á áfengistengdum skaða og samfélagslegum kostnaði. Það felst því mikill sparnaður í því að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi. Sá sparnaður hleypur á milljörðum króna á ári.”)
- ágúst 2024 Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Samtals 15 heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök með áskorun til yfirvalda (segir ” Félögin skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um um einkasölu ÁTVR á áfengi.”)
- júní 2024 Núll prósent skynsemi - Vísir Lára G. Sigurðardóttir, læknir og lýðheilsufræðingur (segir “Allir sérfræðingar sem vinna að áfengisforvörnum eru sammála um að rikiseinokun sé 100% skynsemi, erlendir sem innlendir.” og “Áfengislögum er einmitt ætlað að vernda líf og heilsu allra í samfélaginu. Í stað þess að auka skaðann sem fylgir áfengi með því að afnema lögin um einkasölu ríkis væri skynsamlegra að framfylgja lögum og jafnvel herða, svo hægt sé að snúa aftur þeirri öfugþróun sem átt hefur sér stað síðustu ár. Fyrir mér er annað afglöp í starfi.”)
https://www.visir.is/g/20262875829d/ithrottir-lydheilsa-og-forvarnir
----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)