LEIÐTOGAR Í ÁFALLI
Fregnir frá Washington herma að maður með skotvopn hafi ætlað að ráða Donald Trump Bandaríkjaforseta af dögum.
Samherjar Donalds segjast vera í áfalli. Macron Frakklandsforseti brást snarlega og hét stuðningi við fórnarlambið sem næstum varð. Starmer, forsætisráðherra Bretlands lýsti því strax yfir að vegið væri að tjáningarfrelsinu og svipuð skilaboð berast frá fjölmörgum handhöfum „vestrænna gilda“ í Brussel.
Sami Trump og sömu leiðtogar standa fyrir morðtilræðum víðs vegar um heiminn, nú síðast í Íran og á Gaza að ógleymdum aftökum í Venesuela og á Karíbahafi. Þau tilræði hafa gagnstætt tilræðinu í Washington tekist í óhugnanlega ríkum mæli.
Merz, kanslari Þýskalands, sagði eftir loftárásir Bandaríkjamanna og Ísraelsríkis á Íran síðastliðið sumar að þarna væri verið að vinna sóðalegt verk sem aðrir þyrftu ella að vinna: "the dirty work for all of us" / "die Drecksarbeit für uns alle".
Þetta er vel að merkja kompaníið sem ríkisstjórn Íslands vill að tali fyrir okkar hönd á alþjóðavettvngi!
Engar fréttir hafa borist af leiðtogum ESB og NATÓ í áfalli vegna þessara ódæðisverka.
Frétt mbl.is:
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/04/26/leidtogar_heimsins_i_afalli/
-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)