Fara í efni

LANDBÚNAÐARMÁL ERU ÖRYGGISMÁL OG TIL UMRÆÐU Í KAKALASKÁLA

Birtist í Feyki 01.04.26.

Hér að neðan er slóð á grein sem birtist í dag á vefritinu Feyki. Þar eru landbúnaðarmál sett í samhengi ásetnings ríkisstjórnarinnar að freista þess að telja Íslendinga á að fallast á að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er ekki orðað þannig heldur að málið snúist á þessu stigi um að kanna málið og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið árið 2013.

Þá er fram hjá því horft að umsóknarbeiðni Íslands var afturkölluð árið 2015. Að auki má nefna að veigamestu kaflarnir í aðlögunarviðræðunum sem fram fóru á árunum 2009-2013, sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál, voru aldrei opnaðir og því vandséð hvernig framhald geti orðið á því sem aldrei var hafið.

Í greininni í Feyki er fjallað um fyrirhugaðan fund um þessi efni í Kakalskála í Skagafirði sunnudaginn 12. apríl.

Í Feykisgreininni minni ég á það að framleiðsla á heilnæmum matvælum snúist um lýðheilsu þjóðar og að matvælaframleiðsla og sjálfbærni í þeim efnum sé öryggismál:

“Landbúnaðarmál er þannig heilbrigðismál og þegar litið er til mikilvægis sjálfbærni í matvælaframleiðslu almennt má segja með sanni að um sé að ræða öryggismál og að mínu áliti mun mikilvægara öryggismál en að tengjast vopnakerfum og drápstólum stórvelda.“


Hér er slóð á greinina í Feyki:

https://www.feykir.is/is/adsendar-greinar/landbunadarmal-eru-oryggismal-og-til-umraedu-i-kakalaskala

------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)