KOMINN TÍMI Á GUÐMUND OG ÁSDÍSI?
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims, segir koma til greina að útgerðin skipti Íslandi út - slík sé skattlagningin - og snúi sér annað, til dæmis til Færeyja þar sem skattar séu lægri. Ásdís Kristjánsdóttir, hinn hægri sinnaði bæjarstjóri Kópvogs, segir hægt að leysa vanda skattgreiðenda með því að selja eignir almennings og nefnir þar Landsbankann sérstaklega en þar nemi eigið fé 350 milljörðum.

Sjónarmiðum þessa fólks er slegið up á forsíðu Mogunblaðsins í dag með velþóknun að því er best verður skilið.
Spurning er hve lengi almenningur lætur þessu fólki eftir að ráðskast með sameignilegar auðlindir sínar og eignir. Guðmundur í Brimi hefur malað gull með aðgangi að sjávarauðlindunni um áratugi nær gjaldfrírri sé horft til þess hverju hún hefur skilað í hans eigin vasa. Nú þegar Guðmundur viðrar þá hugmynd að hann skipti Íslandi út fyrir annað sér hagstæðara land hlýtur sú spurning að gerast ágeng á Íslandi hvort ekki sé kominn tími á að skipta honum út ásamt samherjum hans. Það yrði best gert með því að fyrna kvótan úr hendi þeirra og taka upp úthlutun verðmætanna á nýjum forsendum. Ásdís sem þarna talar máli þeirra sem vilja fá að maka krókinn í Landsbankanum situr á sínum stað á ábyrgð kjósenda í Kópvagi. Það er ekki lítil ábyrgð að setja viðhorf eins og hennar í öndvegi.
Mér varð þetta til umhugsunar þegar ég sá forsíðu Morgunblaðsins í morgun, annars vegar hótun Guðmundar að skipta Íslandi út fyrir sér hagstæðara land og hins vegar hvatningu Ásdísar um að hafa Landsbankann af þjóðinni.
Hvorki heyrist hósti né stuna frá Alþingi vena þessa makalausa málflutnings.
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)
Augljóst er að skipta þyrfti þar út líka.