Fara í efni

JOHN Y. JONES KYNNIR UMHEIMINN

Athyglisverð er úttekt John Y. Jones á fræðimannninum og alþjóðastjónmálarýninum Glenn Diesen í norska vikublaðinu Ny tid  í byrjun mars.

Glenn Diesen er afkastamikill fræðimaður, rannsakar með öðrum orðum sjálfur en ræðir auk þess við aðra rannsakendur. Hann fer ekki hinar troðnu slóðir meginstraumsfréttamiðla heldur leitar hann uppi gagnrýnar raddir eins og sjá má á samsettu myndinni hér að neðan. Fyrir bragðið er hann úthrópaður sem varhugaverður villutrúarmaður.

Í trausti þess að margir lesendur síðunnar skilji norsku læt ég hér fylgja slóð á grein Johns Y. Jones í Ny tid. Greinina er hægt að lesa án þess að kaupa áskrift: https://www.nytid.no/det-internasjonale-nettverket/

Höfundur greinarinnar, John Y. Jones, er svo kapítuli út af fyrir sig, einn helsti framherji norrænnar friðarhreyfingar en myndin að ofan er frá því í desember síðastliðnum þegar hann sæmdi Francescu Albanese, talsmann Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu, viðurkenningu friðarsamtakanna Lay down your arms.

Svo er málum háttað að John Y. Jones þekki ég mæta vel og ber fyrir honum mikla virðingu sem öflugum og hugrökkum friðflytjanda. Myndin efst á síðunnu er hins vegar dæmigerð fyrir þennan magnaða mann, Francesca Albanese er sýnileg og brosandi en John Y. Jones aðeins að hálfu á myndinni, nokkuð sem hönnuðir Trönderröd hafa eflaust skynjað að væri karakter-einkenni þess manns sem framkvæmir á meðan hann vill láta aðra njóta verka sinna: https://tronderrod.no/fredsarbeid/alt-er-ikke-like-haplost/

One of the strongest – and certainly one of the most courageous - Nordic voices advocating for peace in the world is that of John Y. Jones, an organizer and activist for decades. He recently gave an overview of Glen Diesen´s international network in the Norwegian weekly Ny tid.
The photo heading this article shows John with Francesca Albanese in Italy last December after giving her a peace prize on behalf of the Nordic peace organization Lay down your arms.
It is in a way symbolic that the photo should have Francesca Albane in full, John Y. Jones in half since this is how he works – giving others the floor – staying in the background himself although always being the primus motor of happenings and events.

En hér er John Y. Jones heill en ekki hálfur:

-----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)