Fara í efni

JEFFREY SACHS RÆÐIR HEIMSMÁLIN – EUROPE IN A MULTIPOLAR WORLD

Síðastliðinn miðvikudag sótti ég fund um málefni Kúrda í húsakynnum þings Evrópusambandsins í Brussel. Síðar þann sama dag hélt Jeffrey Sachs, prófessor við Columbiaháskólann í New York þar erindi um stöðu heimsmála.
Fundurinn var alllangur en fróðlegur.
Ekki var ég sammála Sachs um allt en flest þó.
Annað veifið hef ég birt hér á heimasíðunni slóðir sem vísa á upptökur af fundum Jefrey Sachs því mér þykir þeim tíma sem varið er í að hlýða á orð hans vera vel varið.
Á þessumfundi fór Sachs af nákvæmni yfir yfirlýsingar gefnar við upplausn Sovétríkjanna og fyrirheit sem þá voru gefin um að NATÓ færði sig ekki austur á bóginn – fyrirheit sem öll voru svikin illu heilli.

Slóð á umræddan fyrirlesur:
https://www.youtube.com/watch?v=mqkyulCBcpY

--------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)