Fara í efni

JEFFREY SACHS Í BEINNI FRÁ AÞENU

Jeffrey Sachs, prófessor við Columbia háskólann í New York, er án efa einn áhrifamesti greinandi í alþjóðstjórnmálum samtímans. Tækifæri gefst til að heyra í honum á hádegisfundi í  Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag sem hefst klukkan 12. Þar mun ég fjalla um hervæðingaráform sem nú eru á döfinni í Evrópusambandinu svo og vaxandi tilhneigingar sem þar gætir til ritskoðunar og valdbeitingar á hendur þeim sem voga sér að gagnrýna utanríkisstefnu sambandsins.

Í eyrum einhverra hljómar þetta eflaust sem öfgafullt tal en því miður er þetta veruleikinn. Á fundinum sýni ég viðtal sem ég átti við fórnarlamb slíkrar valdbeitingar, Hüsseyin Dogru að nafni. Hann segir frá hlutskipti sínu, hverjar sakir séu á hann bornar og síðan afleiðingarnar fyrir hann og fjölskyldu hans.

Þá heyrum við í Alfred de Zayas, fyrrum óháðum sérfræðingi Sameinuðu þjóðanna og afkastamiklum greinanda og rithöfundi. Hann hefur haldið því fram að Evrópusambandið eins og það er að þróast hafi tekið eðlisbreytingum frá því sem áður var. Thomas Fazi er ítalskur þjóðfélagsrýnir sem skrifað hefur manna mest að undanförnu um ritskoðun sem ESB hefur heimilað á netinu. Við heyrum einnig í honum.

Með þessari umfjöllun fylgist síðan  Jeffrey Sachs sem staddur er í Aþenu í Grikklandi þessa stundina og kemur hann inn á fundinn beint um fjarbúnað og leggur mat á stöðu mála og líklega þróun.

Þetta er álitlegur pakki hefði ég haldið og þess virði að kíkja í svo notað sé kunnugleg líking.  

-------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti.
Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)