JACQUES BAUD: YFIRVEGUN VÍKJANDI, „GUTS INSTEAD OF BRAINS“
Hér er að finna slóð á viðtal sem Nima R. Alkorshid á Dialogue Works youtube fréttaveitunni átti við Jacques Baud, fyrrum yfirmann I svissnesku öryggisþjónustunni; mann með mikla reynslu að baki í alþjóðlegu starfi, en er nú einkum þekktur fyrir að vera bannfærður af hálfu Evrópusambandsins vegna skrifa sinna um heimspólitíkina, einkum Úkraínu. Án aðkomu dómstóla hefur hann verið sviptur öllum réttindum, lokað á aðgang hans að bankaþjónustu og allir sem voga sér að veita honum aðstoð eiga það á hættu að fá á sig dóm fyrir að aðstoða bannfærðan mann. Þetta er ákvörðun leiðtoga Evrópusambandsins. Með öðrum orðum, þetta er pólitísk ákvörðun!
Margt athyglisvert kemur fram í þessu viðtali sem einkum beinir sjónum að Mið-Austurlöndum. Viðtalið er allangt en ég bendi sérstaklega á fyrri hlutann þar sem Jacques Baud fjallar um þróun í valdakerfum Vesturlanda. Hann segir það athyglisvert að í samningaviðræðum á vegum Trumps Bandaríkjaforseta fari lítið fyrir fulltrúum utanríkisráðuneytisins bandaríska sem búi yfir reynslu og yfirvegun sem forsetann skorti sárlega. Sama sé uppi á tengingunum í Evrópu. Þar séu það stjórnmálamenn sem komist upp með stefnumótun, iðulega án aðkomu þeirra sem raunverulega þekki til mála. Hann nefnir þar sérstaklega sem augljós dæmi, Úrsúlu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB og Kaju Kallas, talsmanns ESB í utanríkismálum. Að baki séu kröfugerðarmennirnir Zelensky og Netanyahu sem hafi óeðlileg áhrif á alla ákvarðanatöku. Óhugnanlegt sé að verða vitni að óheilindum en einnig ósjálfstæði og hugleysi evrópsks ráðafólks.
Tilfinningar og duttlungar ráðamanna séu í þann veginn að víkja allri yfirvegun til hliðar eða með orðum Jacques Baud (sjá mín 37:0) „ You have a guts-driven policy instead of a brain-driven policy; where you don´t act upon intelligence, you act upon feelings“!
https://www.youtube.com/watch?v=CEXkLl7pVzo
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)