ÍSLANDI UMRÆÐULAUST MARKAÐUR BÁS Í ALÞJÓÐAMÁLUM
Þær skuldbindingar sem ríkisstjórn Íslands er að undirgangast fyrir hönd þjóðarinnar eru afdrifaríkar. Reyndar afdrifaríkari en ég tel að fólk almennt geri sér grein fyrir.
Í Evrópu er byrjað að krauma undir vegna vígvæðingaráfergju helstu forystumanna Evrópusambandsins. Það hlálega er að í þann mund sem merki þessa eru að byrja að sjást skuli ríkisstjórn Íslands hlaupa til og vilja vera með - hernaðarhaukunum.
Í ESB eru í fararbroddi harðlínu hægri menn á borð við Kaju Kallas frá Eistlandi, núverandi utanríkismálastjóra ESB, sem lýsti því yfir við embættistökuna að markmiðið væri að koma Rússlandi á hnén helst sundra því með valdi, Macron Frakklandsforseti, sem vill dreifa kjarnorkuvopnabúnaði sem víðast í Evrópu, Merz Þýskalandskanslari sem atti kappi á sínum tíma við Angelu Merkel leiðtoga þýska íhaldsins en varð undir og hún vildi halda sem lengst frá valdastólum sökum harðlínustefnu hans og varð þá þessi höfundur bókarinnar Mehr Kapitalismus wagen gerður að stjórnanda í Þýskalandsdeild hinnar alræmdu alþjóðafjárfestingakeðju BlackRock. Merz vakti svo athygli þegar hann lýsti því nýlega yfir að nú yrði að vígvæðast hvað allt af tæki, sjálfur óttaðist hann ekki lengur stríð!
Svo er náttúrlega danski kratinn Mette Fredriksen sem lýsti því yfir að danska þingið mætti ekki þvælast fyrir foringjum hersins þegar þeir vildu meiri pening til hervæðingar. Getur það virkilega verið rétt? Já, allt er þetta er rétt og liggja heimildirnar opnar fyrir þá sem á annað borð vilja kynna sér þær.
Það er hægt að halda áfram upptalningu úr klúbbnum sem utanríkisráðherra Íslands vill hnýta okkur í taglið á – og hefur nú reyndar gert með undirskrift sinni. En varla má láta ótalinn hernaðarhaukinn Ursulu von der Leyen, sjálfan framkvæmdastjóra ESB, fyrrum varnarmálaráðherra Þýskalands af harðlínu hægrivængnum.
Við kynnumst þessu fólki á myndum, brosandi breitt að segja til nafns sem gestgjafar eða gestkomandi; sjáum faðmlög, kossaflangs og innilegheit. En öll eiga þau sér pólitíska fortíð og því miður líka pólitíska framtíð. Og það er þá framtíð sem utanríkisráðherra í umboði ríkisstjórnar Íslands er að skuldbinda okkur til fylgilags við. Sjá frétt á visir.is: https://www.visir.is/g/20262857665d/skrifudu-undir-sam-komu-lag-um-varnar-sam-starf-vid-esb
En þá vakna spurningar. Hér eru nokkrar:
Þarf ekki að taka umræðu um svona ákvarðanir í samfélaginu og taka til þess góðan tíma?
Væri þetta ekki verðugt tilefni til þjóðaratkvæðagreiðslu?
Telur fólk að með þessu sé verið að auka öryggi Íslands, og ef svo er, mætti biðja um rök fyrir því?
Getur það verið rétt að eftirsóknarverðara sé að horfa til vígvæðingar í stað friðar?
Gæti verið að ríkisstjórn Íslands sé að grafa undan Íslandi sem ríkis í kjörstöðu sem friðelskandi sáttasemjari; ríkis sem nyti víðtæks trausts því allir mættu vita að því væri ekki fjarstýrt af hernaðardólgum hvorki vestan hafs né austan?
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)