Í HEIMSÓKN HJÁ GUÐRÚNU OG GUNNARI
Í gær buðu þau mér í heimsókn til sín í Mannlega þáttinn á RÚV þau Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Þau sögðu að ég mætti velja tvö lög sem leikin yrðu í þættinum og valdi ég Walk on the wild side með Lou Reid og Aríu úr Goldbergtilbrigðum Bachs sem Úrsúla Ingólfsson Fassbind leikur á piano.
Lou Reed er fulltrúi uppreisnar gegn hinu viðtekna en Bach þvert á móti hins gamalgróna og klassíska. Og hljómdiskurinn með Úrsúlu Ingólfsson var nákvæmlega sá sem ég hef spilað þúsund sinnum þegar ég hef viljað koma jafnvægi á hugann. Það hef ég hef stundum þurft að gera.
En svo fékk ég óvænt líka að velja Ragga Bjarna að syngja ljóðið hans Sigurðar Þórarinssonar, Svífur yfir Esjunni. Það jafnast fátt á við þetta þrennt, Sigurð, Esjuna og Ragga Bjarna.
En hér er svo það sem ég sagði í þættinum, nokkuð óðamála enda takmarkaður tími til þess að koma heilli ævi til skila – í það minnsta einhverjum útlínum.
En notalegt var að vera gestur í hljóðstofu Guðrúnar og Gunnars.
https://www.ruv.is/utvarp/spila/mannlegi-thatturinn/23616/biq4qu
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)