Fara í efni

Í BÍTIÐ Á BYLGJUNNI UM KÚRDA, MANNRÉTTINDI OG BJÁNA VIÐ STJÓRNVÖL HEIMSINS

 

Í gær var mér boðið Í Bítið, morgunþátt Bylgjunnar, að ræða um fyrirhugaðan opinn fund um niðurstöður mannréttindadómstóls, Permanent Peoples´ Tribunal, sem tók fyrir mannréttindabrot Tyrkja og staðgengla þeirra í Rojava í norðanverðu Sýrlandi.

Viðtalið er hér: https://www.visir.is/k/c032f213-62ab-4962-91d3-971ee65b50e4-1750668074984


Hrokafull ummæli eru aldrei skynsamleg jafnvel þótt þau standist skoðun. En eftir því sem ég hlusta meira á marga ráðamenn heimsins í samtímanum þeim mun auðveldar á ég með að fyrirgefa sjálfum mér að hafa kallað þá bjána.

Trump er náttúrlega sér á parti en tilfinning mín um grunnhyggna “leiðtoga” vestan hafs og austan hófst engu að síður ekki með honum.

En hvað á að segja um þessi ummæli Trumps eftir Íransárásir Bandaríkjahers:


Hér gerir Bandaríkjaforseti lítið úr Írönun fyrir að hafa ekki svarað af meiri hefnigirni og gefur í skyn að það sé vegna veikleika þeirra. Í því samhengi lætur hann fylgja með að þeir hafi varað við fyrirhuguðum árásum til að forða mannfalli.  
Svo vill hann að Íranir og Ísraelar geri samkomulag um vopnahlé. En hvað um Bandaríkin, standa þau að öllu leyti fyrir utan lög og rétt; ætlar heimurinn að láta Bandaríkin komast upp með að henda sprengjum, drepa fólk og eyðileggja mannvirki að geðþótta?
Líklegt er að í Íran muni einhverjir hugsa sem svo, að þarna sé komin ástæðan fyrir því að Íranir þurfi að eignist kjarnorkuvopn til þess að komast nær því að standa jafnfætis þessari ógn.    



En þetta sagði svo Mark Rutte, aðalframkvæmdastjóri NATÓ eftir loftárásir Bandaríkjahers á Íran í skeyti til Trumps eftir að hann ávarpaði sinn kæra forseta, sinn kæra Donald:
"Congratulations and thank you for your decisive action in Iran, that was truly extraordinary and something no one else dared to do. It makes us safer."
Í þýðingu Morgunblaðsins: „Kæri for­seti, kæri Don­ald, ham­ingjuósk­ir og takk fyr­ir þínar ákveðnu aðgerðir í Íran, þetta var sann­ar­lega ótrú­legt og eitt­hvað sem eng­inn ann­ar hef­ur þorað að gera. Við erum öll ör­ugg­ari fyr­ir vikið.“
Sjá nánar hér:
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/06/24/sendi_trump_halfgert_astarbref_fyrir_fundinn/

Svona talar talsmaður NATÓ – og virðist ætla að verða enginn eftirbátur Jens Stoltenberg, forvera síns. Sannast sagna hélt ég að ekki gætu menn beygt sig meira í duftið fyrir hergagnaiðnaðinum en Stoltenberg gerði aftur og ítrekað.
Sjá til dæmis: https://www.ogmundur.is/is/greinar/norskur-krati-bugtar-sig-i-washington

Það er rétt að minnast þess að Stoltenberg var í reynd talsmaður NATÓ-ríkjanna allra og þar með ríkisstjórnar Íslands því aldrei heyrðust minnstu mótmæli gegn hervæðingartali hans, hvorki héðan né frá nokkru NATÓ ríki - ekki eitt einasta kvak til andófs þessu fyrirlitlega tali. Það mun heldur aldrei heyrast neitt frá núverandi ríkisstjórn fyrr en almenningur rís upp.

Þetta eiga sem sagt að heita bandamenn Íslendinga.

Nú þurfum við öll að fara að hugsa okkur til hreyfings.

Látum þetta fólk - og þar undanskil ég ekki ríkisstjórn Íslands - ekki toga okkur lengra út í fenið.

----
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna:
https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.