Fara í efni

HVERNIG VÆRI AÐ HLUSTA Á ÞÁ SEM ENGUM HÓTA?

Á vefsíðu Málfrelsisfélagsins fékk ég birta grein þar sem segir: … Á hádegisfundinum í Safnahúsinu á mánudag má fræðast um hlutskipti Kúrda og jafnframt öðlast skilning á flókinni stöðu sem nú er uppi í Mið-Austurlöndum. Þeir sem tala máli lýðræðis og friðar eiga það skilið að á þá sé hlustað og að þeim sé sú virðing sýnd að ofbeldi á hendur þeim liggi ekki í þagnargildi…

Greinina má nálgast hér: https://krossgotur.is/hlusta-a-tha-sem-engum-hota/

Einnig birti ég greinina hér:

Á hádegisfundinum í Safnahúsinu á mánudag má fræðast um hlutskipti Kúrda og jafnframt öðlast skilning á flókinni stöðu sem nú er uppi í Mið-Austurlöndum.
Þeir sem tala máli lýðræðis og friðar eiga það skilið að á þá sé hlustað og að þeim sé sú virðing sýnd að ofbeldi á hendur þeim liggi ekki í þagnargildi.

mánudag 23. júní klukkan tólf á hádegi hefst athyglisverður fundur í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Hann verður ekki langur, í mesta lagi rúmur klukkutími. En ég held að óhætt sé að lofa því að fundurinn verði áhugaverður og lærdómsríkur.
Þarna verða mættir höfuðsaksóknarar dómstóls sem ég hef stundum vísað til sem varnardómstóls alþýðu, Permanent People´s Tribunal.
Þessi dómstóll var stofnaður í París á sjöunda áratugnum til þess að rannsaka mannréttindabrot og stríðsglæpi í Víetnam. Frumkvöðlarnir voru mannréttindafrömuðir á borð við Bertrand Russel og Jean Paul-Sartre og fleiri. Áratug síðar var ákveðið að veita dómstólnum framhaldslíf. Í fyrstu til að rannsaka óhæfuverk herforingjastjórna í Rómönsku Ameríku. Síðan hefur Permanent People´s Tribunal tekið til rannsóknar ýmis svæði þar sem stríðsglæpir hafa verið framdir, nú síðast í Rojava, sjálfstjórnarsvæði Kúrda í norðanverðu Sýrlandi.
Sjónum er beint að tyrkneska hernum og þeim sem hafa verið honum handgengnir í stríðinu í Sýrlandi undanfarin ár. Þar er um að ræða öfgafullar trúarhreyfingar kenndar við ISIS og Al Nusra. Þau öfl hafa nú verið sett til valda í Damaskus eftir að Assad forseti var settur af.
Við alla þessa hatursmenn sína vilja Kúrdar semja. Foringi Kúrdanna, Adbullah Öcalan, sem setið hefur í tyrknesku fangelsi í rúman aldarfjórðung mun hafa verið spurður hvort það geti verið að hann vilji semja við ofsækjendur sína. Hann mun hafa svarað því til að því megi ekki gleyma að Tyrkir og Kúrdar hafi búið saman að mestu leyti í friðsemd í þúsund ár. Okkur beri að horfa til þess í stað þess að hafa í hótunum. Markmiðið sé að tryggja frið í lýðræðislegu samfélagi. Það verði ekki gert með ofbeldi og drápstólum þótt Kúrdar hafi vissulega gripið til vopna sér til varnar. Það hafi þeir neyðst til að gera í héruðum Kúrda innan Tyrklands, í Sýrlandi og víðar.
Á hádegisfundinum í Safnahúsinu á mánudag má fræðast um hlutskipti Kúrda og jafnframt öðlast skilning á flókinni stöðu sem nú er uppi í Mið-Austurlöndum.
Þeir sem tala máli lýðræðis og friðar eiga það skilið að á þá sé hlustað og að þeim sé sú virðing sýnd að ofbeldi á hendur þeim liggi ekki í þagnargildi.
Ég hvet alla sem eiga þess kost og láta sig varða opna lýðræðislega umræðu til þess að mæta á þennan fund.

-------------------------------------------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/