HVERNIG VÆRI AÐ HLUSTA Á RADDIR REYNSLU OG SKYNSEMI?
Siv Friðleifsdóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra birtir athyglisverða grein á vefmiðlinum visir.is þar sem vísað er í yfirlýsingu norrænna og baltneskra lýðheilsusérfræðinga um áfengis og vímuvarnarmál.
Siv segir: «Fram til þessa hafa flest Norðurlandanna búið við áfengisstefnu sem á heimsvísu hefur þótt til fyrirmyndar...» Nú séu hins vegar «blikur á lofti vegna ágengni markaðsafla sem lítið gefa fyrir rannsóknir og þar með staðreyndir og enn minna fyrir lýðheilsu. Þetta þekkjum við hér á landi en samsvarandi þróun á sér stað annars staðar.»
Síðan vitnar hún í fyrrnefnda yfirlýsingu: «Við hvetjum ríkisstjórnir Norðurlandanna til að huga vandlega að heilsufarslegum, efnahagslegum og samfélagslegum ávinningi þess til langs tíma. Við skulum taka mið af árangri og fylkja okkur um stefnu sem verndar velferð og heilsu samfélaga okkar og dáðst er að um allan heim.»
Í þessum skrifum sem eru allrar athygli verð kemur fram að alls staðar eru markaðsöflin að naga þessar stoðir samfélagsins með aðstoð meðvirkra stjórnvalda.
Hvernig væri að stjórnvöld stæðu einu sinni með almenningi gegn gróðaöflunum ekki síst þegar bæði reynsla og skynsemi mæla með því?
Ríkisstjórn, Alþingi, löggæsla og ákæruvald gætu byrjað á því að lesa umrædda grein Sivjar Friðleifsdóttur. Hún er hér: https://www.visir.is/g/20252733612d/nordan-vegid-ad-norraenni-forvarnarstefnu
----
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.