HVERJU SVARAR DÓMSMÁLARÁÐHERRA?
Í helgarblaði Morgunblaðsins birtist nú um helgina opið bréf frá formanni Áhugafólks um spilafíkn. Bréfinu er beint til dómsmálaráherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Af bréfinu má ráða að af hálfu stjórnvalda standi til að gera breytingar á lögum um fjárhættuspil og að samtök þeirra sem ánetjast hafa spilfíkn, aðstandendur þeirra og annað áhugafólk um málefnið, sem mynda samtökin sem Alma talar fyrir, telji að hugmyndir ríkisstjórnarinnar gangi út á að friðþægja rekendum spilakassa, opna þeim leið inn á internetið og lögleiða þannig fjárhættuspil á ágengari máta en þegar er fyrir hendi.
Margoft hefur komið fram að innlendir rekstraraðilar spilakassa harma það að erlend fyrirtæki sitji ein að því að nýta sér íslenska spilafíkla í hagnaðarskyni og vilja ólmir komast í bráðina.
Þeim ber saman um að banna eigi erlenda keppinauta eða öllu heldur framfylgja lögum sem gilda um slíkt bann gagnvart þeim. Þetta sé hægt að gera í gegnum greiðslumiðlunarkerfi en allt öðru máli eigi að gegna um íslenskar „þjóðþrifa- og góðgerðarstofnanir.“
Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir:
„Ef þetta er rétt skilið liggur næst við að spyrja hverjir hafið beðið um slíkt kerfi. Almenningur hefur ekki kallað eftir þessu. Foreldrar barna sem alast upp í síma- og netheimi hafa ekki kallað eftir þessu. Fjölskyldur spilafíkla hafa ekki kallað eftir þessu. Heilbrigðisstarfsfólk hefur ekki kallað eftir þessu. Hagsmunasamtök barna og skóla hafa ekki kallað eftir þessu. Foreldrafélög grunnskóla hafa ekki kallað eftir þessu og hvorki nemendafélög framhaldsskóla né háskóla hafa farið fram á aukið svigrúm til fjárhættuspila. Þvert á móti hefur Stúdentaráð Háskóla Íslands — á sama tíma og Háskóli Íslands er stærsti rekstraraðili spilakassa og skafmiða á landinu — ályktað um að háskólinn hætti alfarið rekstri fjárhættuspila.
Í stuttu máli gildir það um þau sem þurfa að taka við afleiðingum fjárhættuspila, að ekkert þeirra, hvort sem það er yfirfullt geðheilbrigðiskerfið, félagsþjónusta sveitarfélaga eða umsjónaraðilar barna og ungmenna í vanda, hafa kallað eftir rýmri heimildum til fjárhættuspila. Þvert á móti hefur ákall þessara aðila gengið í gagnstæða átt...“
Ekki að undra að spurt sé þessu opna bréfi til dómsmálaráherra í hverra þágu stjórnvöld vinni.
Ég leyfi mér að bæta við spurningu til alþingismanna og fjölmiðla hvar þeir ætli að stilla sér upp. Í þessu máli er afstöðuleysi enginn valkostur. Menn verða að gera það upp við sig hvort þeir vilji standa með þeim sem „starfa í anda lýðheilsu eða þjóna þeim sem brjóta hana niður“, svo vitnað sé í niðurlagsorð Ölmu Hafsteins, formanns Áhugafólks um spilafíkn. Undir þessi orð vil ég taka.

--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)