Fara í efni

HALDLITLAR UNDANÞÁGUR

Undanþágurnar eru mál málanna hjá þeim sem tala fyrir því að «kíkt verði í pakkann». Svo er að skilja að nú sé að sjá í samningaviðræðum hverju Íslendingar komi til með að halda eftir af undanþágum frá regluverki Evrópusambandsins sem EES samningurinn hefur að geyma.

Vandinn er sá að reynslan sýnir að undanþágurnar reynast haldlitlar. Spurningin er hvað grundvallarlög ESB mæla fyrir um. Það eru þau sem halda til framtíðar, ekki reglugerðirnar. Þeim, geta þau sem ráða hverju sinni í Sambandinu breytt með meirihlutaákvörðun.
Þetta gæti reynst okkur sem búum við einhver gjöfulustu fiskimið veraldar örlagaríkt að vanmeta.

Kári hefur annað veifið skrifað greinar á vefsíðu mína um þessu mál – skrifaði af meira viti og framsýni um raforkumálin þegar orkupakkarnir voru til umræðu en flestir gerðu að því er mér fannst - og nú um Evrópusambandið.
Í vikunni skrifaði hann um íslenska landgrunnið, yfirráð Evrópusambandsins og fullveldið. Annars vegar var um að ræða örstutta samantekt sem hann kallar minnisblað, hins vegar lengri greiningu.

Þar segir meal annars : ...Besta vörnin gegn röngum eða yfirborðskenndum fullyrðingum í Evrópumálum felst í því að rýna af nákvæmni í frum- og afleiddar réttarheimildir Evrópusambandsins ásamt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins. Þannig afhjúpast takmarkanir stjórnmálalegra loforða þegar þau mæta hinu stjórnskipulega regluverki ESB. Það kemur æ betur í ljós að dýrmætasta auðlind Íslendinga er sjálft fullveldið — réttur þjóðarinnar til þess að fara með löggjafar-, dóms- og framkvæmdavald á eigin landsvæði.

Í samantektinni, “Minnisblaðinu” segir: Aðild að Evrópusambandinu snýst ekki um smávægilegar útfærslur heldur grundvallarbreytingu á yfirráðum. Fullveldisréttindi yfir landgrunninu og stjórnun sjávarútvegsins myndu færast frá íslenskum stjórnvöldum til stofnana sambandsins í Brussel og Lúxemborg. Yfirborðskennd loforð um „sérlausnir“ standast ekki þegar litið er á bindandi stofnsáttmála og dómframkvæmd Evrópuréttarins.

Ég mæli með þessum skrifum Kára. Þau er að finna hér: https://www.ogmundur.is/is/frjalsir-pennar/islenska-landgrunnid-yfirrad-evropusambandsins-og-fullveldid

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)