Fara í efni

HÆTT VERÐI VIÐ LÖGLEIÐINGU BÓKUNAR 35

Á myndinni eru talið frá vinstri, Guðbjörg Sveinsdóttir, sem stýrði aðalfundinum, Þorsteinn Bergsson sem var endurkjörinn formaður samtakanna, Þorleifur Gunnlaugsson stjórnarmaður og Ágúst Valves Jóhannesson, gjaldkeri ásamt syni sínum Steindóri Jaka

Samtökin Til vinstri við ESB héldu aðalfund sinn í gær, sunnudag, kusu nýja stjórn, samþykktu reikninga og sendu frá sér ályktun þar sem varað er við því að binda bókun 35 í landslög. Í ályktuninni segir meðal annars að " lögleiðing á bókun 35 myndi breyta ... lögskýringarákvæði í lagabókstaf og þrengja þar með að sjálfsforræði íslenskra stjórnvalda. Sterk rök hafa verið færð fyrir því að slíkt myndi ekki, nú frekar en áður, standast stjórnarskrá Íslands. Samtökin Til vinstri við ESB beina þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnarinnar að draga til baka frumvarp um lögleiðingu á bókun 35 en ella felli Alþingi frumvarpið."

Ályktun fundrins er hér birt í heild sinni:

"Aðalfundur samtakanna Til vinstri við ESB fagnar því að þjóðin skuli hafa hafnað aðildarviðræðum við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslunni 28. ágúst síðastliðinn.

Samtökin eru andvíg aðild að Evrópusambandinu einkum vegna þess hve mjög markaðshyggja er höfð þar að leiðarljósi auk þess sem áhrifa hergagnaiðnaðar gætir í sífellt meira mæli í allri stefnumótun.

Evrópusambandið hefur tekið grundvallarbreytingum í seinni tíð og stefnir hratt í að verða miðstýrt stórríki sem þrengir að lýðræði í aðildarríkjunum.

Samningurinn um hið Evrópska Efnahagssvæði, EES, ber þessari þróun einnig glöggt merki. Hann gerist sífellt ásælnari um inngrip í skipulag innviða samfélagsins. Samningamenn Íslands um EES á árunum 1992 og 1993 voru vel meðvitaðir um hættuna sem myndi stafa af því að verða við kröfum Evrópusambandsins sem þá þegar voru fyrir hendi um að EES ríkin undurgengjust Evrópurétt að fullu enda hefði stjórnarskrá Íslands ekki leyft slíkt. Við þetta varð til bókun 35 sem var hugsuð sem ólögbundið lögskýringarákvæði sem gæfi Íslendingum rétt til þess að halda í sínum höndum úrskurðarvaldi um álitamál sem upp kynnu að koma um hvar mörkin lægju á milli Evrópuréttar og íslenskra laga.

Lögleiðing á bókun 35 myndi breyta þessu lögskýringarákvæði í lagabókstaf og þrengja þar með að sjálfsforræði íslenskra stjórnvalda. Sterk rök hafa verið færð fyrir því að slíkt myndi ekki, nú frekar en áður, standast stjórnarskrá Íslands.

Samtökin Til vinstri við ESB beina þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnarinnar að draga til baka frumvarp um lögleiðingu á bókun 35 en ella felli Alþingi frumvarpið."

--------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)