GÓÐUR FUNDUR Í BREIÐABLIKI
Ég held að óhætt sé að segja að það hafi verið mál manna að opinn fundur sem efnt var til í Breiðabliki á Snæfellsnesi í gærkvöldi hafi verið vel heppnaður. Sjálfum fannst mér framsöguræður þeirra Ernu Bjarnadóttur, hagfæðings, Haralds Ólafssonar, formanns Heimssýnar og Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra vera góðar og upplýsandi en þau voru auk mín frummælendur á fundinum.
Primus motor að baki honum var hins vegar heimamaður á Snæfellsnesinu, Gísli Guðmundsson, fyrrum lögreglumaður og kom það í hans hlut að setja fundinn, bjóða gesti velkomna og setja samkomunni þannig ramma.
Fundurinn var vel sóttur og urðu nokkrar umræður að framsöguerindum loknum.


-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)
Á mánudag var síðan haldinn fundur í Iðnó um Evrópusambandið og fullveldismál. Sá fundur var bæði fróðlegur og skemmtilegur þótti mér. Prýðilegar ræður fluttar og fjörugur fundarstjóri!