Fara í efni

FYRIR EITT HUNDRAÐ OG TÓLF ÁRUM ...

Fyrir réttum eitt hundrað og tólf árum fæddist móðir mín, Guðrún, í Hólabrekku vestur á Grímstaðaholti í Reykjavík. Þessi dagur, 30. október, er mér, nú sem fyrr, tilefni til þess að minnast hennar – oftast nær aðeins innra með mér.

Hún hugsaði og talaði á annan veg en almennt gerðist; heiminum yrði aldrei breytt með illu sagði hún, en með góðu mætti færa margt til betri vegar.
Henni var lýðræði í blóð borið en það þýddi hins vegar ekki að hún samsinnti almannaviljanum ef hún taldi hann ekki vera til eftirbreytni. Því fór fjarri! Tíðarandinn var með öðrum orðum ekki hennar leiðarljós heldur var hún sífellt leitandi að leiðum til þess að bæta hann svo hann yrði móttækilegur fyrir jákvæðum breytingum. 

Í bók minni Rauða þræðinum segi ég þetta meðal annars um lífsviðhorf móður minnar undir millifyrirsögninni, Ekkert breytist nema tíðarandinn taki á móti:

” Eitt er víst að menn mega aldrei verða viðskila við sannfæringu sína. Móðir mín spurði oft þegar mér var mikið niðri fyrir og lá mikið á að knýja fram breytingar, hversu raunhæfar þær væru, hvort samfélagið væri tilbúið undir þær hugmyndir sem ég vildi hrinda í framkvæmd. Því um það hlyti baráttan að snúast, að skapa vilja til breytinga. Ef hann væri ekki fyrir hendi yrðu menn undir farginu. Gættu þín á því að svo verði ekki og mundu eitt, sagði móðir mín: Að sækjast aldrei eftir vinsældum, fylgdu því sem þú telur vera rétt og hlustaðu eftir ráðum þeirra sem þú metur mikils.”

Viljinn þarf að vera fyrir hendi

Mér þykir þarna komið að kjarna máls. Hvers vegna er þjóðfélaginu ekki breytt til betri vegar? Það er vegna þess að viljinn til slíkra breytinga er ekki fyrir hendi i nægilegum mæli. Verekfni stjórnmálanna, samfélagsins alls, er þá að stuðla að slíkum vilja.

Fréttir þessa dagana bera með sér að langt sé í land – lengra í land, jafnvel miklu lengra en áður var lengi vel; aðeins horft inn í ískalt silfrið, kaup og sölu, debet og kredit; markaðsvæðing mannlífs og náttúru efst á blaði, rukkarar á hverju strái. Búið að gefa upp a bátinn að tryggja öryggi og frið með réttlæti, aðeins horft til drápstóla, fyrirgefning látin víkja fyrir hugarfari hefndarinnar.

Hér að neðan eru minningarorð um móður mína – orð sem að sjálfsögðu ylja syninum um hjartarætur en eru jafnframt innblástur til góðs ásetnings:



https://www.ogmundur.is/is/greinar/a-kvedjustund

--------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)