FUNDUR UM ESB NÆSTA LAUGARDAG
Athygli er vakin á hádegisfundi næsta laugardag í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Svo er að skilja á ríkisstjórninni að hún hyggist efna til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem við verðum spurð hvort við viljum að Ísland gangi í Evrópusambandið. Mikilvægt er að þessi atkvæðagreiðsla, ef af verður, fari ekki fram umræðulaust og er þessi fundur liður í að örva umæðu um þetta málefni sem varðar framtíð lands og þjóðar.

-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometime people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Ususally this is because the reply has been dirceted to the trash bin. Be aware of this.)