FIMMTA GREININ
Augljóst er að alþingismenn sem ganga erinda fíkni-iðnaðarins en beita sér á sama tíma fyrir rýmkun aðgengis ungmenna að áfengi og öðrum fíkniefnum, hafa gengið fram af mörgu fólki.
Ég er í þeim hópi. En ég er líka einn þeirra sem gleðst yfir því að til skuli vera fólk eins og Lára Sigurðardóttir sem hefur burði og þor til þess að mæta þessari ósvífni með rökum og af staðfestu.
Frábær er grein hennar á vísi.is þar sem fjallað er um þennan hrikalega tvískinnung þingmanna í ljósi siðareglna sem þeir hafa sjálfir sett sér en augljóst sé að þeir hafi þær reglur að engu.
Lára segir:
“Í 5. grein siðareglna Alþingismanna segir að þeir þurfi að "taka ákvarðanir í almannaþágu". Þeir eiga því ekki að setja hagsmuni þeirra sem selja þessa fíknivöru ofar hagsmunum ungmenna og framtíðarkynslóða. Þingmenn eiga að sýna ábyrgð í verki og hjálpa okkur foreldrunum að vernda börnin okkar…”
Ég hvet alla til þess að lesa grein Láru þar sem þessa tilvitnun er að finna:
https://www.visir.is/g/20262950149d/mamma-eg-lofa
--------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)