EVRÓPURÁÐIÐ VARAR VIÐ SKERÐINGU Á TJÁNINGARFRELSI Í ÞÝSKALANDI – SEE REPORT
Í skýrslu Michael O’Flaherty, talsmanns Evrópuráðsins í mannréttindamálum (Human Rights Commissioner), sem birt var í Strasborg 15. apríl síðastliðinn, segir að verulega sé nú þrengt að tjáningarfrelsi í Þýsklandi einkum tjáningarfrelsi þeirra sem gagnrýna Ísraelsríki vegna stríðsreksturs á Gaza.
Ekki sé nóg með að gagnrýnendur séu beinlínis sóttir til saka, heldur eru fundir bannaðir og þrengt er að akademískri umræðu og rannsóknarstarfi. Þessa sjái þegar merki innan háskóla í Þýsklandi.

Orðrétt segir í skýrslu talsmanns Evrópuráðsins í mannréttindamálum:
“Restrictions on expression have been particularly evident at universities, with several institutions curtailing Palestine-related academic activities, including preventing in-person events and deploying heavy police presence, citing security and polarisation concerns. More broadly, event cancellations, venue withdrawals, and disciplinary actions against students and staff are reported to have narrowed academic debate and led to self-censorship within universities.”
Ég bendi sérstaklega á greinar frá 21 til 26 í skýrslunni sem má nálgast hér: Germany: Commissioner calls for protection of freedom of expression and peaceful assembly - Commissioner for Human Rights
Ísland á aðild að Evrópuráðinu í Strasborg. Sjálfur var ég í hópi fulltrúa Íslands á þingi Evrópuráðsins á árunum 2013 til 2016.
Æskilegt væri að fulltrúar Íslands á þingi ráðsins gerðu grein fyrir þeirri gagnrýni sem í vaxandi mæli er að koma fram á aukna valdstjórnartilburði og skerðingu á tjáningarfrelsi í ýmsum Evrópuríkjum.
-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)