ESB OG ÍSLAND
Það skiptir máli hvernig spurt er í boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsaðild Íslands.
Líklegra þykir að hægt yrði að afla meira fylgis við spurningu um framhald aðildarviðræðna þar sem fram kæmi «hvað væri í pokanum» en ef spurt væri hvort fólk vildi að Ísland gengi í Evrópusambandið. Hið fyrra felur það í sér að hægt sé að ná samningum um undanþágur frá almennu regluverki ESB og að slíkar undanþágur gætu verið til frambúðar. Ef þetta er hægt, gott og vel «gáum hvað er í pokanum» en ef á hinn bóginn þetta er ekki hægt þá væri hreinlega verið að blekkja kjósendur með spurningu af þessu tagi.
Það skiptir því ekki litlu máli að fá það á hreint hvað rétt er í þessu efni.
Þessi umræða er ekki æsingalaus. Farið er að heyrast að menn hljóti að vera bjánar og fáráðlingar séu menn á þessu máli en ekki hinu.
Hvernig væri að horfa til þess að önnur hvor fullyrðingin er rétt og hin er röng. Annað hvort er hægt að semja um undanþágur og frávik til frambúðar eða það er ekki hægt.
Hvernig væri að í stað heitinga og svigurmæla reyndu menn að færa rök fyrir máli sínu?
Það gerir Kári í skýrslu sem birtist hér á síðunni. Niðurstaða hans er að viðræður snúist um aðlögun - vissulega geti verið um að ræða fresti og tímabundnar lausnir – en um varanlegar undanþágur sé ekki að ræða.
Sjá rök Kára hér: https://www.ogmundur.is/is/frjalsir-pennar/undanthagur-og-valdheimildir-i-staekkunarretti-evropusambandsins
----------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)