Fara í efni

ERFIÐUR DAGUR

 

Borgarstjóri, Hildur Björnsdóttir, segir þetta vera erfiðan dag. Svo er að skilja að hann sé erfiður fyrir borgarstjórnarmeirihlutann í Reykjavík. 

Ástæðan er sú að verið er að segja upp láglaunafólki hjá borginni - tugum saman - í skipulagsbreytingum og niðurskurði sem á að spara tæpan milljarð á ári. Hluti af þessum breytingum eru útboð á störfum skólaliða og ræstingafólks en með þessu móti er ætlunin að ná niður útgjödum borgarinnar um 900 milljónir.

Þetta er gamalkunn aðferð til niðurskurðar, að spara með því að rýra kjörin niður við gólflistann og fækka jafnframt millistjórnendum til þess að rýma fyrir utanaðkomandi milliliðunum sem ætlað er taka við verkefnum þeirra að einhverju leyti.

Borgarstóri biður fjölmiðla um að sýna borgaryfirvöldum skilning á þessari erfiðu stundu. Það tel ég að eigi alls ekki að gera því að þótt það sé hárrétt hjá borgarstjóra að þetta sé erfiður dagur þá er hann fyrst og fremst erfiður fyrir þau sem rekin eru úr starfi og missa þar með lífsviðurværi sitt. Því fólki er varla þægð í því að um þetta ríki þögn – það leyfi ég mér að fullyrða.

Því er lekið út að fyrri borgarstjórnarmeirihluti hafi áður samþykkt útboðin. Það breytir engu í mínum huga. Fyrri meirihluti var því miður hallur undir svona hugsun en sá meirihluti sem nú er tekinn við hálfu verri því hann hefur gert stjórnunaraðferðir af þessu tagi að sérstakri pólitískri hugsjón sinni. Hún er kölluð peningafrjálshyggja og sker niður og sparar svo aðrir geti grætt.
Vísr.is: https://www.visir.is/g/20262925830d/tugum-borgarstarfsmanna-sagt-upp
Mbl.is: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/25/a_sjotta_tug_borgarstarfsmanna_sagt_upp/

Þessar línur skrifa ég í og með til þess að koma á framfæri hugleiðingu Kára Sigurðssonar, formanns Sameykis, á vefsíðu stéttarfélagsins af þessu tlefni, Hver borgar þegar borgin sparar?:

Hver borgar þegar borgin sparar?

 

---------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti.
Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)