EPSTEIN OG LEYNIÞJÓNUSTURNAR: PIER MORGAN Í SJÓNVARPI, JÓN KARL Á NEISTUM
Böndin í Epstein spillingunni berast nú öll að ísraelsku leyniþjónustunni Mossad auk þess sem bandaríska leyniþjónustan CIA kemur við sögu eins og jafnan þar sem Síonisminn er annars vegar.
Hér er slóð á nýlega úttekt Jóns Karls Stefánssonar á vefmiðlinum neistar.is:.
Barnaníð, pólitík, morð og genarannsóknir: Úkraínutenging Epsteins
Sjá hér: https://neistar.is/greinar/barnanid-politik-mord-og-genarannsoknir-ukrainutenging-epsteins/
Hér að neðan er slóð á samræður þeirra Alan Dershowitz og Bassem Youssef í youtube þætti Piers Morgan.
Sá fyrrnefndi, Alan Dershowitz var lengi vel lögmaður Epsteins, alræmdur síonisti sem meðal annars mun hafa greitt götu H.W. Bush með lagaklækjum svo hann mætti sleppa fyrir horn að opna pyntingabúðir Bandaríkjanna í Guantanamó.
Hann afneitar þjóðarmorði á Gaza, allt saman sjálfsvörn Ísraelsríkis segir hann, og af og frá að Epstein hafi starfað fyrir ísraelsku leyniþjónustuna, Mossad. Hann hefði sagt honum það, lögfræðingi sínum, vitandi að væri hann tengdur Mossad eða CIA yrði hann aldrei sakfelldur!
Þetta veit ég og þetta vissi hann, segir Alan Dershowitz í þættinum án þess að blikna!!!
Undir lokin telur hann að viðmælanda sínum hafi orðið á í ásökunum í sinn garð og að hætti bandarískra lögmanna komast menn lítt áfram eftir það, því nú er aukaatriði í þessari umræðu gert að aðalatriði máls og hamst þar og hoppað.
En meginefnið má hverju barni þó vera augljóst: Þarna fer siðlaus fulltrúi siðlausra afla.
Bassem Youssef er egypskur/Bandaríkjamaður, læknir og fjölmiðlamaður sem látið hefur til sín taka á sviði mannréttindamála, nú síðast í harðri gagnrýni sinni á þjóðarmorðið á Gaza.
Þátta stjórnandinn Pier Morgan á litríkan feril í fréttamennsku að baki og hefur sjaldan verið lygnt þar sem hann fer um.
Hér er svo þátturinn:
"A VERY Valuable Asset" Epstein's Links To Mossad | Bassem Youssef vs Alan Dershowitz
----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)